Þjóðarsálin mætti skammast sín

Þjóðarsálin (borgarsálin) ætti að skammast sín skrifar fyrirsögn í bloggi sínu, "við þurfum ekki fréttir utan af landi"hvort sem henni líkar betur eða verr er ríkisútvarpið/sjónvarpið eign allra landsmanna og reynir að hagar sér samkvæmt því.

Mætti miklu frekar skera niður hrútleiðinlegar margendurteknar fótboltafréttir/handboltafréttir  fluttar allan daginn í sjónvarpi og útvarpi. Viðtölin við undarlegar listaspírur er kallast listamenn er fáir eða enginn  botna neitt í eru viðamikil í útvarpi og sjónvarpi. Þá mættu bjórauglýsingar hverfa af skjánum lítil sem engin menning í þeim nema síður væri. Endalausar fréttir af gömlum ljótum húsum í Reykjavík er ríkið á að halda við hvort sem það er hægt eða ekki. Mætti ég heldur fá að heyra aflafréttir af landsbyggðinni eða snjó á Akureyri.

 


mbl.is Svæðisfréttamönnum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband