''Fóstbræður á Alþingi''

Þeir ''fóstbræður á Alþingi'' Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna töldu bráðnauðsynlegt á Alþingi í dag; að endurskoða 26. grein Stjórnarskrárinnar í ljósi þess hvernig forsetinn túlkar það vald er honum er þar falið. Vel má hugsa sér að endurskoða umrædda grein en er  ekki brýnt að breyta henni í ljósi þess ef efahagskerfi/stjórnkerfi samfélagsins félli á einni nóttu eins og hér átti sér stað haustið 2008?  

Hvaða varnagli þarf að felast í Stjórnaskránni  þegar slíkir voðaatburðir eiga sér stað. Er ekki brýnt að þeir sem eru við stjórnvölinn fari frá; og við taki utanþingsstjórn er forsetinn kæmi  til með að skipa tímabundið?

Eins og allkunnugt er sitja  þingmenn á Alþingi , ráðherrar í ríkistjórn og embættismenn enn við völd; er meira og minna báru ábyrgð á í hruninu . Er það mögulegt að sama fólkið endurreisi þjóðfélagið eins og nú á sér stað? Nei, setja þarf grein í stjórnarskrána þar sem sett yrðu skýr fyrirmæli um að forsetinn gæti sett af umrætt fólk  um  lengri  eða skemmri tíma?

Vinstri grænir settust í ríkisstjórn með Samfylkingunni ásamt hrunráðherrunum og eru því ábyrgir fyrir stjórnleysi/getuleysi er ríkt hefur í landinu síðan hrunið átti sér stað; hvað þá að rannsókn þeirra er beint komu að fjármálabraskinu hafi leitt nokkuð umtalsvert í ljós.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur nánast ekki tekið neitt til í sínum ranni eftir hrunið; verður formaðurinn ekki að taka á tiltektinni þar; áður en flokkurinn fer í breytingu á Stjórnarskránni?WounderingHalo

 


mbl.is Vill breyta 26. greininni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband