RÚV "kyndir eldinn"?

 Kom fram í fréttum RUV í hádeginu hörð  mótmæli væru gegn verðandi forseta Donald Trump í New-York , Cigago o.fl. borgum, upphrópanir: „ekki minn forseti“. Veit ekki hvað RÚV gerði mikið úr fréttinni en fann hana ekki inn á Mbl.is.

Stóru i fjölmiðlarnir í Bandaríkjunum bera mikla  ábyrgð með harkalegri umfjöllun sinni gegn verðandi forseta en hafa stutt frú Clinton ótæpilega. Virðist vera svipaðar aðferðir og hjá ESB að þeirra skoðanir eru „ þær einu réttu“; leynt og ljóst kynt undir múgæsingu gegn öðrum  frambjóðendum, pólitíski „Rétttrúnaðurinn“ er það eina rétta aðrar skoðanir koma ekki fram eða eru slegnar niður.

Ekki laust við að  að fjölmiðlar hér hafi beitt svipuðum aðferðum, síðast man undirrituð eftir framkomu RUV við Davíð Oddson í forsetakosningunum í júní sl.

Æpandi fólk: „ekki minn forseti“ bera  ekki merki um að lýðræðisleg  úrslit forsetakosninganna í USA  beri að virða– gagnstætt ræðu frú Clinton eftir ósigurinn, hélt framúrskandi  ræðu þar sem  lýðræðið var henni henni efst í huga og þjóðin ætti að sameina sig um sinn verðandi forseta.

 

 

(Rétt í þessu kl. 14 hélt fréttamaður RÚV áfram að tönglast á umræddri frétt,  þeirra „ær og kýr“ að kynda undir pólitískan ófrið.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband