Ólafur Ragnar til Brussel?- (vonandi ekki)

Miðað við póltískan feril forsetans frá upphafi gæti hann látið sér detta í hug að verða forseti framkvæmdastjórnar ESB; vonandi hefur hann hlaupið af sér pólitísku hornin. Hætt við að forsetinn yrði þá mjög umdeildur meðal þjóðarinnar; ætli hann hugsi ekki frekar um þjóð sína en ''glamúrembætti'' í Brussel; gæti áreiðanlega fengið betra embætti - ekki er óhugsandi að hann bjóði sig fram til forseta í fjórða sinn. Líklegri kostur að hann vilji fylgjast með hvernig stjórnlagaþinginu og  stjórnarskránni reiðir af;  geti notað málsskotsréttinn ef hann telur þörf á því.Wizard Halo
mbl.is Hreifst af Ólafi Ragnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtlegur úrslitaleikur í handboltal

Frábær úrslitaleikur í handbolta hefði náð hámarki ef Danir hefðu unnið en Frakkar voru slóttugri; Danir höfðu meiri leikgleði og þrautseigju; sem mér finnst eigi að prýða gott íþróttafólk. Ísland má vel við una með sjötta sætið nú getur liðið   byggt sig betur upp með  skynsamari hætti til frekari árangurs - en vera ekki með gullið í augunum strax í fyrsta leik. Gott að setja markið hátt en koma sér upp þeim hjólförum að við séum best í heimi.Smile Halo
mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Dátarnir með eldfærin (leika sér að eldinum)''

''Eldfærin er ævintýri eftir H.C. Andersen. Þar segir frá dáta nokkrum (Lilja,Ásmundur og Atli)sem gömul kerling (Ríkisstjórnin ) sendi inn í holt tré að sækja fyrir sig eldfæri.Inni í trénu hitti hann fyrir þrjá hunda, hvern af öðrum, og hafði sá minnsti augu á við undirskálar (LÍÚ), sá næsti augu á stærð við mylluhjól (fiskimiðin)og sá þriðji augu á stærð við Sívalaturn. (orkuauðlindir) Þeir sátu á kistum fullum af peningum og fyllti dátinn (Lilja,Ásmundur og Atli)alla vasa af gullpeningum úr kistu stærsta hundsins. Hann fann svo eldfærin og færði kerlingunni (ríkisstjórninni) en þegar hún vildi ekki segja honum af hverju hún vildi fá þau (ráku þau ríkisstjórnina) afhöfðaði hann  hana.Síðan fór hann til höfuðborgarinnar og lifði í vellystingum en þegar peningarnir voru búnir datt honum í hug að nota eldfærin og þá komu hundarnir og sóttu fyrir hann hvað sem hann vildi. Dátinn lét þá fyrst sækja meiri peninga en síðan langaði hann að sjá prinsessuna,( Ísland, þjóðina sína)sem var lokuð inni í turni sínum til að reyna að koma í veg fyrir að sá spádómur rættist að hún giftist ótignum manni. (færi til ESB í Brussel) Hann lét hundana sækja sofandi prinsessuna nótt eftir nótt en þegar komst upp um hann var honum varpað í dýflissu og átti að taka hann af lífi.Á aftökupallinum fékk hann að kveikja sér í síðustu pípunni og þegar hann notaði eldfærin komu allir hundarnir, vörpuðu kóngi og drottningu og ráðgjöfum(ESB/Samfylking,Össur o.co.) þeirra upp í loftið svo þau brotnuðu í mola þegar þau lentu en dátinn og prinsessan giftust og hundarnir sátu veisluna.
(Eldfærin er eitt af elstu ævintýrum Andersens og komu fyrst út 8. maí 1835 ) ''


mbl.is Eru að leika sér að eldinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðherra hendir stríðshanska á íslensk sjávarútvegsfyrirtæki!?

Telja má að forsætisráðherrann þvaðri og blaðir í niðurlægjandi tón um íslenskan sjávarútveg, hrópar ''sægreifar og fámenn valdaklíka íhaldsaflana'' en kemur  ekki nálægt vandamálinu af ábyrgð og sanngirni; atvinnuveginum sem nú um stundir heldur þjóðinni á floti   í þrengingum sínum. Hvers vegna má ekki semja við útgerðarmenn um sanngjarnar greiðslur af veiddum fiski  eftir verðmæti og söluverði - og sníða þá  vankanta af fiskveiðikerfinu með lögum sem talið er nauðsynelegt?

Aldrei getur orðið sátt um að innkalla veiðiheimildir/kvótann í ríkiskassann, aldrei verður hægt að leggja niður takmörkun fiskveiðiheimilda; að leggja veiðiheimildir undir ríkiskassann þar sem pólitísk öfl ráðskast með fjármunina er ekki skynsamleg lausn og mun draga úr framleiðni fyrirtækjanna þegar til lengri tíma er litið; það er að fara úr öskunni í eldinn. Mögulegt er að setja lög um að fiskveiðiauðlindin tilheyri þjóðinni en er ekki sama og ríkiskassinn.

Samningar um fiskveiðar þurfa  að ná yfir fiskveiðar í víðum skilning; fiskveiðar eru atvinnurekstur sem þarf að bera sig með arðsömum hætti þar við bætast launagreiðslur, fyrirtæki sem þjóna sjávarútveginum og skapa atvinnu og verðmæti; eðlilegt að kjarasamningar fylgi þar með.

Fiskveiðar eru svo stór hluti í þjóðarbúskapnum að raunhæft er að setja skilyrði um heildstæða samninga einnig við verkalýðsfélög; þegar Samfylkingin með forseta Alþýðusambandsins í taumi beitir pólitískri kúgun til að ná fram markmiðun sínum.

Pólitískar upphrópanir Samfylkingarinnar bæta ekki ástandið allra síst þegar forsætisráðherrann sjálfur skýtur sér undan merkjum og er forsöngvarinn.

 (Fundur Samfylkingar minnir á fundinn er kratarnir héldu  fyrr á árum með tilheyrandi fjölmiðlakastljósi; sátu og nöguðu útlend kjúklingabein til að mótmæla íslenskri framleiðslu, það voru rökin í málinu.)

 


mbl.is Ögurstund í sjávarútvegsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðingarverð afstaða Landskjörstjórnar - dómsmálaráðherra segi af sér!

Virðingarverð afstaða Landskjörstjórnar að segja af sér eftir dóm Hæstaréttar;  til eftirbreytni - alvarleg mistök urðu í framkvæmd kosninganna til stjórnlagaþings. Þeir sem sem ofar sitja í kerfinu fara hvergi, dómsmálaráðherra ætlar að sitja sem fastast á ''klúðrinu'',  er má telja óvirðingu við lýðræðislega stjórnarhætti - og Hæstarétt.

Hér þarf að kveða á  með skýrum hætti í væntanlegri stjórnarskrá um að ef alvarleg mistök verða í stjórnsýslustörfum, í þessu tilviki að dómi Hæstaréttar, þá verði viðkomandi ráðherra að víkja úr ráðherrastóli; ámælisverð mistök ef embættismannakerfið/stjórnsýslan fer á svig við lög er fara á eftir í hvívetna; eru siðlaus skilaboð er sýna virðingarleysi gagnvart ábyrgðarmiklu starfi í þágu þjóðarinnar.SidewaysHalo

 


mbl.is Landskjörstjórn sagði af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnlagaþing kosið eftir kjördæmum.

Fimm hundruð manns í framboði til stjórnlagaþings var ekki boðlegt, undirrituð valdi þá frambjóðendur er hún kannaðist við , að fletta myndum var skásta leiðin. Þeir sem áttu eða kunnu ekki á tölvu voru enn verr settir, frambjóðendur náðu misjafnlega til fólks. Betra hefði verið að kjósa eftir gildandi kjördæmum.  

Það fyrirkomulaga að kjósa  þar sem Reykjavíkursvæðið er stór hluti af þjóðinni og réði kosningunni alfarið  var enn ranglátara en núverandi kosningakerfi. Má telja að þess vegna hafi landsbyggðin setið heima í mómælaskyni; í upphafi skyldi endirinn skoða.ShockingHalo

 

 


mbl.is Kjörklefarnir þóttu of dýrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félagsmálastjóri Kópavogs taki pokann sinn?

Virðist sama leiðin og þegar eldri borgarar í Kópavogi voru sviptir sundferðum sínum á fyrra ári; þá flaug sú  sú fiskisaga að félagsmálastjórinn hafi átt stærsta þáttinn í þeirri árás?

 Atvinnulausum er nauðsynlegt að hafa aðgang að líkamsrækt og bókasafni til að viðhalda heilsu sinni og sjálfsmynd.

 Er ekki kominn tími til að félagsmálstjórinn taki pokanna sinn hefur setið óralengi í starfi; þyrfti meiri víðsýni og manngæsku þar innan búðar?SidewaysHalo


mbl.is Fríðindi tekin af atvinnulausum í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Greiðum ekki skuldir óreiðumanna''

''Greiðum ekki skuldir óreiðumanna'' eru fleyg orð Davíðs Oddssonar þáverandi seðlabankastjóra er hann lét falla í Kastljósi skömmu eftir bankahrunið. Hann var sjálfum sér samkvæmur hafði átt stærstan hlut í að yfirtaka bankana með þeim innstæðum er óreiðumönnum/bröskurum hafði ekki tekist að ryksuga.

Eftir stóðu skuldirnar  þar sem erlendir lánardrottnar/braskarar urðu að axla ábyrgð á lánum til útrásarvíkinga. Með því bjargaði Davíð þjóðinni frá stærsta skuldafeninu er annars hefði hneppt þjóðina í fjötra um alla framtíð.

Hvers vegna vill Samfylkingin/stjórnaandstaðan ekki birta viðtal Kings seðlabankastjóra Englandsbanka og Davíðs þar sem King virðist hafa lýst yfir að íslensku þjóðinnni beri ekki  að greiða Icesaveskuldina?  

Eflaust er dýrt að vera fámenn þjóð í auðlindaríku landi; en við eigum ekki að greiða Icesave skuldina, ekki að ganga á mála hjá ESB; stöndum á rétti okkar í dómssölum ef ekki vill betur til.

Engin hætta á að við eigum ekki bandamenn það kom í ljós þegar við neituðum Icesavelögunum síðast.

Fyrr eða síðar verður Samfylkingin að horfast í augu við að Davíð Oddsson átti stærstan hlut - hafði kjark til bjargar þjóðinna frá ánauð um aldir, þegar í óefni var komið.

 Þann kjark vantar stjórnarheimilið/stjórnvöld í dag til að halda áfram baráttunni fyrir efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar;en aðalmálið viðrist vera að koma þjóðinni/auðlindunum til ESB og afsala  sjálfstæði þjóðarinnar um alla framtíð.WounderingHalo 


mbl.is Krefst þess að trúnaði verði aflétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umsögn um dóm Hæstaréttar.

Eiríkur Tómasson, lagaprófessor sagði í viðtali við RUV í gær að samkvæmt Hæstaréttardómunum væru gerðar strangar kröfur til framkvæmdar kosninganna, það kom honum á óvart hversu margir gallarnir voru, nefndi hann m.a.,að fulltrúar frambjóðenda hefðu ekki fengið að vera viðstaddir talningu atkvæða.

Kosturinn við dóm Hæstaréttar væri að hann vísaði til framtíðar að framkvæmd færi ekki á svig við lög er gæti leitt síðar til stærri vandamála í framkvæmd kosninga.

Undirrituð kaus í umræddri kosningu, kom á óvart að setjast inn í pappakssa og setja kjörseðilinn í að er virðist plastkassa/brauðkassa en það er nýi kjörkassinn; vonandi tryggir umræddur dómur nákvæmari kosningar.

Eftirfarandi bloggfærsla skrifaði undirrituð 2. des. 2010:  

 

 Ari Teitsson bóndi sigurvegari kosninganna.

Ekki er allur refilstígur stjórnlagakosninganna kominn í ljós enda má telja kosningarnar meingallaðar þótt bara sé nefnt misvægi atkvæða; er aldrei í sögu þjóðarinnar hefur verið eins hróplega ranglátt. Reykjavíkursvæðið hafði algjöra yfirburði er ekki þekkist meðal þeirra er vilja telja sig með lýðræðisþjóðum; má þar nefna Bandaríkin þar sem íbúar Whasington hafa engan öldungadeildarþingmann vegna setu þingsins þar. Meira segja  ''í sæluríki Samfylkingar ESB'' er misvægi atkvæða.

Nú ber svo við að landsbyggðin hér á landi er svipt lýðræðislegri þátttöku með umræddum reglum um kosningu til stjórnlagaþings; þéttbýlið réði alfarið kosningunni. Lítið eða ekkert rætt við aðra nýkjörna þingmenn allra síst þeirra þriggja er komust inn utan af landi.

Fréttamiðlar þar með taldir ríkisfjölmiðlar keppast að mæra Þorvald Gylfason sem sigurvegara kosninganna ekki minnst á misvægi atkvæða lengur.

 Ef einhver er sigurvegari kosninganna er það Ari Teitsson, bóndi; þjóðin á þar væntanlega fulltrúa sinn þegar  landbúnaður/atvinnurekstur verður ræddur varðandi nýja eða endurbætta stjórnarskrá. WounderingHalo


Jóhanna tapaði - ''kratarósinni úr hnappagatinu''

Nú spinnur  forsætisráðherra hræðsluáróður með niðurstöður Hæstaréttar gagnvart Sjálfstæðisflokknum  og ætlar að sjá um að stjórnlagaþingið verði ekki tekið frá þjóðinni. Er ekki mergurinn málsins að stjórnlagaþingið má ekki taka af Samfylkingunni;  átti að vera ''rósin í hnappagatið''.

Stjórnlagaþingið varð aldrei fyrir alla þjóðina vegna þess að tveir þriðju sátu heima.

Er ekki komin tími fyrir ríkistjórnina að taka á uppbyggingu atvinnuveganna og  hækka í það minnsta lægstu launin. Margar fjölskyldur er nú standa í skilum eru á ystu nöf vegna skattpíningar ríkisstjórnarinnar.

 Fólk virðist deyja umvörpum meira en eðlilegt er vegna niðurskurðar í velferðarkerfinu að talið er; undir handarjaðri ''velferðarstjórnarinnar''. 

Stjórnlagaþingið er búið að vera  sem pólitískt verkfæri Samfylkingarinnar; þegar og ef stjórnarskránni verður breytt þá verður það vonandi undir  formerkjum fyrir almannahag. WounderingHalo


mbl.is Íhaldið er „skíthrætt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira klúður - forsætisráðherra niðurlægir þjóð og þing

Undur og stórmerki, forsætisráðherra ætlar að láta setja ný lög á Alþingi til að kjósa þessa tuttug og fimm stjórnlagaþingmenn aftur; nýtt löglegt klúður handa þjóðinni. Forsætisráðherra hefur orðið sér til stórskammar og niðurlægt þing og þjóð.

Spennandi  - hvert verðu næsta klúður?

Vonandi verður forsetinn í réttri stöðu og gætir hagsmuna þjóðar sinnar gegn fasistatilburðum forsætisráðherra.W00tHalo


mbl.is Kemur ekki til greina að hætta við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnlagaþingið pólitískt klúður!?

Engin orð ná  yfir ráðaleysi núverandi ríkisstjórnar sama hvaða mál koma fram. Klúðrið náði nýjum hæðum í dag með dómi Hæstaréttar um stjórnlaga þingið. Rétt að minnast orða Sigurðar Líndals, prófessors að rétt væri að venja sig við að fara að lögum áður en ný stjórnarskrá yrði samin; og lögð fram fyrir þjóðina.

Stjórnlagaþingið var að mestu leyti ísmeygilegt fyrirkomulag spunameistara Samfylkingar (''með Steingrím í handjárnum''), að ná betri ímynd og sterkara fylgi; með Þorvald Gylfason, prófessor í fararbroddi.

Landsbyggðin klippt út úr myndinni enda á að  leggja niður allar byggðir;fiskimiðin og aðrar auðlindir   þjóðnýttar í nesti handa  Samfylkingunni  til Brussel.

Við þurfum nýja stjórnarskrá með öðrum formerkjum en núverandi ríkistjórn stefndi að.

Burt með núverandi stjórn.


mbl.is Stjórnlagaþingskosning ógild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Silfur Egils: Hugverkavæntingar - verðlaus pabbír?

''Nýr spámaður'' (Anna Hildur Hildibrandsdóttir) kom fram í Silfri Egils í gær með vel útfært ''Exelskjal'' þar sem slegið var föstu verðmæti framtíðar hugverkamanna/listamanna í veltu erlendis og hérlendis miðað við veltu helstu útflutningsgreinar. Engin samræða fór fram um hverjar markaðshorfur yrðu í nánustu framtíð þrátt fyrir meira og minni  yfirvofandi kreppu í Evrópu, Bandaríkjunum og jafnvel víðar;- hvort almenningur hefði efni á njóta hugverkanna/listarinnar.

Helstu rökin voru Björk í tveggja ára heimsreisu með 20 manns í vinnu  og að spennusögur Arnaldar Indriðasonar seldust í milljónum eintaka. Með allri virðingu fyrir fyrrnefndum þá geta þau tæplega  verið mælihvarfi á stöðuga framleiðslu/útflutning er gefur öruggar tekjur í framtíðinni; þá er verið að tala upp verðmæti er kynnu að verða til í afar stóru magni; minnir dálítið á kúlulán og hlutabréfavafninga banka hérlendis og erlendis er urðu verðlausir pappírar eins og alþekkt er.

Hvernig fór með tónlist Bubba Morthens er hann seldi Glitnisbanka fyrirfram; hún varð verðlaus eða verðlítil á einni nóttu? 

Silfur Egils/ríkisfjölmiðillinn þarf að koma fram með fleiri hliðar og  rök á veltu/framleiðslu hugverka en fram kom  í þætti hans - svona einsleitar væntingar skýjum ofar eru tæplega boðlegar.

-Kaupendur/áhorendur verða að vera til staðar hverju sinni þá mætti ef til vill reikna út getu almennings (og veltu í samræmi) hér á landi; hvað hann getur greitt fyrir marga jólatónleika eftir þessa jólavertíð - um þar næstu jól; betra að hafa dæmið í smærra formi? -


Tíu meyjar - Aðventa, annar sunnudagur

1Enn sagði Jesús: „Þá er líkt um himnaríki og tíu meyjar sem fóru til móts við brúðgumann með lampa sína. 2Fimm þeirra voru fávísar en fimm hyggnar. 3Þær fávísu tóku lampa sína en höfðu ekki olíu með sér 4en hinar hyggnu tóku olíu með á könnum ásamt lömpum sínum. 5Nú dvaldist brúðgumanum og urðu þær allar syfjaðar og sofnuðu.
6Um miðnætti kvað við hróp: Brúðguminn kemur, farið til móts við hann. 7Þá vöknuðu meyjarnar allar og tóku til lampa sína. 8En þær fávísu sögðu við þær hyggnu: Gefið oss af olíu yðar, það er að slokkna á lömpum vorum. 9Þær hyggnu svöruðu: Nei, hún nægir aldrei handa öllum. Farið heldur til kaupmanna og kaupið handa yður. 10Meðan þær voru að kaupa kom brúðguminn og þær sem viðbúnar voru gengu með honum inn til brúðkaupsins og dyrum var lokað.
11Seinna komu hinar meyjarnar og sögðu: Herra, herra, ljúk upp fyrir oss. 12En hann svaraði: Sannlega segi ég yður, ég þekki yður ekki.
13Vakið því, þér vitið ekki daginn né stundina.  Biblían: Matt. 25. 1-13

 

Verum fyrirhyggjusamari en hinar fávísu meyjar; látum ekki Aðventuna líða án þess að gefa einhverjum er við þekkjum, sem er sorgmættur, einmana og fátækur, þá minnumst við Jósefs og Maríu er voru stödd í Betlehem á ferð þar sem María fæddi Jesúbarnið  í fjárhúsi; enginn hafði tíma eða húsrúm fyrir þau.Halo

 


Herferð gegn prófkjörum - og spillingu?

Nú ætlar Samfylkingin í andlitslyftingu er efst á blaði að opnum prófkjörum verið hætt. Ekki er tilgreint nánar hvað eru opin prófkjör og hvað lokuð prófkjör. Minnir endilega að prófkjör Samfylkingar í Kópavogi hafi farið fram á lokuðum félagsfundi þar sem fáir aðilar völdu frambjóðendur. Svoleiðis ''lokuð prófkjör'' er tæplega til fyrirmyndar eða prófkjör þar sem allir geta gengið í viðkomandi flokk mínútu fyrir prófkjörið eins og átti sér stað hjá Sjálfstæðimönnum í Kópavogi; ekki einsdæmi fréttir komu um prófkjör þar sem talið var að íþróttafélög hefðu alfarið ráðið prófkjörum, minnir eitt af þeim prófkjörum hafi farið fram á Akureyri.

Að framansögðu var hægt að ganga í fleiri en einn flokk og gerast félagi ef ekki urðu þau úrslit er menn vildu helst.

Prófkjör hafa löngu gegnið sér til húðar frambjóðendur hafa ruðst áfram með fjármagni  keypt sér atkvæði er hefur skapað spillingu; sérstaklega í Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni. Auðvelt að fletta upp í Rannsóknarskýrslu Alþingis og sjá  hverjir fengu mesta fjármagnið.

Hins vegar eru prófkjör Vinstri grænna yfirleitt harðlokuð í anda ''sovétkommonista''.

Erfitt verður að finna gallalausa leið en koma verður í veg fyrir að menn geti hlaupið á milli allra flokka og kosið þá sem þeim hugnast.  Ef til vill er lausnin að frambjóðendur verði að hafa verið flokksbundnir ákveðinn tíma fyrir kosningar ef það er framkvæmanlegt - síðan fari kosningin fram fyrir opnum tjöldum?

Sjálfstæðísflokkurinn á mikið starf fyrir höndum að taka til hjá sér vegna framboða ef hann ætlar að standi undir nafni sem flokkur allra stétta.FrownHalo


mbl.is Opnum prófkjörum verði hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta nýársgjöfin - ríkisstjórnin fari frá!

Eftir þvílíka leiksýningu með lífeyrisjóðum og bönkum yrði besta nýársgjöfin ef Jóhanna Sigurðardóttir gengi á fund forsetans á Bessastöðum um áramótin og skilaði umboð sínu sem forsætisráðherra; - forsetinn skipaði síðan utanþingsstjórn. Þörf er á styrkri stjórn er nýtur hlutleysis Alþingis en getur tekið  ákvarðanir óháð stjórnmálaflokkunum; er alltaf eru í sama farinu, í sýndarleik til að reyna halda fylgi eða öllu heldur ná fylgi á nýjan leik.

Framangreind hugmynd er betri kostur fyrir Jóhönnu og Steingrím heldur en hrökklast frá með skömm ef þau samþykkja Icesavesamningana.

Reikna má með að forsetinn leggi þá samþykkt fyrir þjóðina og hún hafni henni. Almenningur á ekki að bera fall einkabankanna. ''Við eigum ekki að borga skuldir óreiðumanna'', eins og Davíð Oddsson lýsti réttilega yfir í kjölfar efnahagshrunsins.


mbl.is Rætt um verulegar afskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ari Teitsson bóndi sigurvegari kosninganna.

Ekki er allur refilstígur stjórnlagakosninganna kominn í ljós enda má telja kosningarnar meingallaðar þótt bara sé nefnt misvægi atkvæða; er aldrei í sögu þjóðarinnar hefur verið eins hróplega ranglátt. Reykjavíkursvæðið hafði algjöra yfirburði er ekki þekkist meðal þeirra er vilja telja sig með lýðræðisþjóðum; má þar nefna Bandaríkin þar sem íbúar Whasington hafa engan öldungadeildarþingmann vegna setu þingsins þar. Meira segja  ''í sæluríki Samfylkingar ESB'' er misvægi atkvæða.

Nú ber svo við að landsbyggðin hér á landi er svipt lýðræðislegri þátttöku með umræddum reglum um kosningu til stjórnlagaþings; þéttbýlið réði alfarið kosningunni. Lítið eða ekkert rætt við aðra nýkjörna þingmenn allra síst þeirra þriggja er komust inn utan af landi.

Fréttamiðlar þar með taldir ríkisfjölmiðlar keppast að mæra Þorvald Gylfason sem sigurvegara kosninganna ekki minnst á misvægi atkvæða lengur.

 Ef einhver er sigurvegari kosninganna er það Ari Teitsson, bóndi; þjóðin á þar væntanlega fulltrúa sinn þegar  landbúnaður/atvinnurekstur verður ræddur varðandi nýja eða endurbætta stjórnarskrá. WounderingHalo


mbl.is Ekki nóg að koma oftast fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NAFTA betri kostur en ESB?

Ísland er í erfiðri aðstöðu í samningum um makrílveiðar ef til vill vegna smæðar sinnar en  að sama skapi er landfræðileg lega landsins styrkleiki. Margir telja að við sem smáríki verðum að hafa bakland stórþjóða; Samfylkingin heldur fram þeim rökum að þar sé ESB vænlegast.  En er það svo, bandalagið sjálft hefur viðurkennt óstjórn í sjávarútvegi innan sinna vébanda og vísað á Ísland er hefur tekist miklu betur að stjórna sínum fiskveiðum; samt hefur Samfylkingin gengið fram fyrir skjöldu að ófrægja íslenskan sjávarútveg, aldrei komið með nýtilegar tillögur um það sem betur mætti fara nær eingöngu verið ófrægingaráróður um greinina; til rökstuðnings um  að okkar efnahagslega sjálfstæði verði best borgið innan ESB.

Okkar landfræðilega staða kallar á samvinnu við ríki á norðurhvelinu nú og einnig þegar litið er til framtíðar ef siglingaleið opnast yfir Norðurpólinn.

Brýnt er að skoða betur samstarf við NAFTA, fríverslunarsamning Kanada, Mexíkó og USA. Dollarinn er ekki síðri/betri gjaldmiðill en Evran er nú stendur völtum fótum.

Landfræðileg staða Íslands styrkir stöðu okkar að leita samstarfs við Norður-Altlandshafslöndin.

Þótt við eigum mikil viðskipti við Evrópu þurfum við ekki að ganga í ESB, fiskafurðir til þeirra eru þeim ekki síður mikilvægar en okkur.WounderingHalo


mbl.is Segja Íslendinga ekki virða leikreglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverir töpuðu hlutkestinu - 78sinnum?!

Hverjir töpuðu hlutkestinu til stjórnlagaþings er ekki hægt að birta þessar niðurstöður vegna laga um forgangsröðun; ekki nægileg röksemd til að birta ekki nöfn þeirra  er töpuðu hlutkesti. Hverslags ólög eru hafa verið sett?  Svo lengi sem undirrituð man hafa hlutkesti verið opinber í öllum kosningum.


mbl.is Vörpuðu hlutkesti 78 sinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinavæðing á stjórnlagaþingi?

Yfirlýsing og ánægja Þorvaldar Gylfasonar á Rás 2 um að margir hverjir er kosnir voru á stjórnlagaþing væru ''vinir hans og samherjar'' er ekki traustvekjandi; verður niðurstaða þingsins hvaða skoðun prófessorinn og vinir hans hafa? Eru þeir hinu einu réttu með ''geislabaug'' er allt vita af hverju efnahagshrunið varð og hvað þarf til úrbóta?

Hvernig hefur innri gagnrýni háskólanna um  það sem betur mætti fara verið framkvæmd? Háskólarnir eru of margir fyrir litla þjóð og hafa  óbeint dregið úr verkmenntun jafnvel grunnskólamenntun, fjármagninu hefur tæplega verið vel varið miðar við heildarhagsmuni þjóðarinnar.

Undirrituð leyfir sér að draga í efa að ''heildarhagsmunir" þjóðarinnar að áliti Þorvalda Gylfasonar, prófessors og vina hans varði almannahag, sé hinn eini rétti boðskapur; ef til vil erfitt fyrir þá háskólamenn er sitja gagnrýnislaust í glerhúsi upp í háskóla og láta sig litlu varða svokallaða lægri menntun/verkmenntun eða hagsmuni  þjóðarinnar í heild þar með talin landsbyggðin.FrownHalo

(Yfirlýsing Þorvaldar Gylfasonar, prófessors um marga vini sína á stjórnlagaþingi var á rás 2 en ekki í Kastljósi og hefur nú verið leiðrétt. Undirrituð biðst velvirðinar á misminninu)


mbl.is 25 kjörin á stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband