ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS GLÆSILEG FYRIRMYND.

Júlíus Jóhann Karl Jóhannsson fékk verskuldaðan heiður sem Íþróttamaður ársins;innilega til hamingju. Þátturinn í sjónvarpinu var í alla staði vel upp settur, fjölbreytni íþróttagreina aldrei verið meiri.

- En gripurinn sem veittur er í verðlaun er fyrir mér eldhúskollur á hvolfi - skil ekki listina og heiðurinn, bikarinn fyrir minn smekk eru glæsilegri verðlaun.

Auðvitað er það íþróttamaðurinn sem skiptir máli;en verðlaunagripurinn fyrrnefndi sem slíkur, er tæplega eftirsóknarverður.


mbl.is Eiginlega ólýsanleg tilfinning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TÍU LITLIR NEGRASTRÁKAR

Ræddum um jólagjafir yfir kaffinu í morgun, hvað við fengum í jólagjöf sem börn, man að Björn bróðir  minn  fékk bókina "TÍU LITLIR "NEGRASTRÁKAR", var mikil uppáhaldsbók hjá okkur öllum.

Negrastrákarnir voru lesnir aftur og aftur alveg upp til agna. Við dáðum þessa drengi og fannst þeir hugrakkir og bráðskemmtilegir.

Aldrei var rætt um litarhátt og okkur fannst þeir venjulegir strákar í barnsminninu.

Allt í einu er bókin hrópuðu upp í fjölmiðlum er talin fordómafull fyrir börn.

Óskiljanleg bókmenntafræði eða sálfræði.

Orðið "niggari" þótti fordómagult orðskrýpi;Las bókina "SVERTINGJADRENGUR"' heimsfræg bók eftir Richard Wright; þar er orðið niggari notað í lítilsvirðandi og fordómafullan hátt. Þvert  á móti eru orðin "SVRTINGJADRENGUR"sem er titill bókarinnar og orðið negri ekki notað með niðrandi hætti.

Svo spretta alls konar fræðingar upp og tala niður "TÍU LITLA NEGRASTRÁKA" óhæfa til lestrar fyrir börn. Búa til fordóma sem við systkinin höfðum aldrei heyrt sem börn.

"Miklar sköpunargáfur" hljóta þessir vaktmenn að hafa  í réttindabaráttu fyrir svart fólk.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Aðfanfdagskveld - ljósið í myrkrinu

fimm_adventukerti_031209Nú styttist í hátíðina senn verður heilagt kl.sex eins og sagt er. Allt hljóðnar og kyrrð færist yfir.

Þá koma minningarnar upp í hugann hjá mörgum; mér verður hugsað til  bernskujóla minna í sveit, er svo heppin  að eiga minningar sem gott er að hverfa til.Mín fyrstu bernskujól sem ég man eftir eru aftur til þess tíma þegar ekki var rafmagn.

Þeim tíma fylgdi oft myrkfælni er ég fór ekki varhluta að. Þorði ekki um hús að ganga eftir að myrkva tók nema hafa ljós í hendi.

Eitt kveld var undantekning,það var aðfangadagskveld,  þá var ég örugg; fannst að ekkert illt gæti verið á sveimi meðan Jesúbarnið yrði gestur.

Jólaundirbúningurinn fór fram á heimilinu, allur valkostur, hreingerning er alltaf fylgdi mikil stemming.Mitt hlutverk var var að fægja lampana og þótti mikið vandaverk.

Á mannmörgu heimili  var ekki gefið allir ættu til skiptanna í rúmið. Það kom ekki að sök því hinn svokallaði fátækraþerrir kom alltad á Þorláksmessu til að þurrka þvottinn.Undirbúningi lauk þegar hangikjötið var soðið á Þorláksmessu.

Kl. sex settust allir hreinir og prúbúnir að jólaborðinu þar sem bæði rjúpur og hangikjöt voru á boðstólnum.

Ekki voru jólagjafir margbrotnat,kerti og spil fastir liðir, ein bók á mann ef hægt var og þótti mikil stórgjöf.

Tilhlökkunin var samt engu minni en nú; við áttum sannarlega gleðileg jól. (Áður birt 2006)


AF HVERJU ERU AÐVENTUKERTIN STUNDUM FIMM?

 

Aðventukransinn sem við þekkjum hefur fjögur kerti. Sums staðar eru kertin fimm. Það merkir ekki að Aðventan sé lengri - Fimmta kertið er tileinkað Jesúbarninu og kveikt á því á jóladag. (Vísindavefurinn)

fimm_adventukerti_031209

 

 

 

 

 

 

 


HLUTVERK UNGU KYNSLÓÐARINNA Í LOFTSLAGSVÁ.

Hamfarir nægja ekki til þess að gripið sé til pólitískra aðgerða spyr Grétar Thungberg, loftlagssinni og manneskja ársins á Facebooksíðu sinni. 

Skógareldar,eldgos,fárviðri og jarðskjálftar hafa geysað löngu fyrir tíma mannskepnunnar hér á plánetunni;heimildir  um hamfarir ná ekki langi í tíma jarðsögu eða tíma og rúmi í geimnum.

Síðan maðurinn kom til sögunnar hefur hann litið á sig sem herra jarðanir. Fleygt fram í margskonar tækni oo gengið ótæpilega á auðlindir jarðar ef svo heldur áfram mun mannskepnan  tortíma sjálfri sér og tilveru plánetinu.

Brýnt er að draga verulega úr hvers konar neyslu og óhófi. 

Fyrst og fremst ber ungu kynslóðunm að breyta um lífsstíl og stefna inn í samfélag þar sem við látum okkur nægja að lifa af því "sem landið gefur",ekkert fram yfir það.

Hósamt líf er hlutverk ungu kynslóðarinnar, að breyta sér sjálfum og hafna óhóflega efnislegum gæðum.

Hlutverk unga fólksins er mest afgerandi þátturinn þvert á landamæri þjóða.

Ef ekki þá verður þungt fyrir fæti að breyta jarðarbúum til hófsamari lífsháttum.

 

 

 

 


mbl.is „Hvernig er það mögulegt?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórði sunnudagur í Aðventu

Lítið barn kom kom inn í herbergi, Með tárin á augunum sagði það: "Mér finnst ekki gaman þegar slökkt er á ykkur".

Þá svaraði fjóðra kertið: "Ekki vera hrætt, kæra barn. Meðan ljós er á mér getum við kveikt á hinum kertunum. Ég heiti von". Það var gleðisvipur á andliti barnsins þegar það notaði ljósið á vonarkertinu til þess að kveikja á kærleikskertinu,trúarkertinu og friðarkertinu. Að því loknu sagði barnið við sjálft sig: "Nú geta jólin komið í alvöru".innocent

Fyrir 40 árum orti norski rithöfundurinn Sigurd Muri um aðventukertin fjögur sem kallast "Na tenner vi det forste lys"

Lilja Sólveig Kristjánsdóttir þýddi ljóðið, VIÐ KVEIKJUM EINU KERTI KERTI Á:

Við kveikjum einu kerti á .

Hans koma nálgast fer

sem fyrstu jól jötu lá 

og Jesúbarnið er.

Við kveikju tveimur kertum á 

og komu bíðum hans,

því Drottinn sjálfur soninn þá

mun senda í líking manns.

Við kveikjum þremur kertum á,

því konungs beðið er,

þótt Jesús sjálfur jötu og strá,

á jólum kysi sér.

Við kveikjum fjórum kertum á.

Brátt kemur gesturinn,

og allar þjóðir þurfa að sjá,

að það er frelsarinn.

 

(Vísindavefurinn)


Trump og Pútín - menn ársins?

Seint munu öll kurl komast til grafar í árásum og réttarhöldum Demókrata gegn Donald Trump,forseta USA. Nú er öllu til tjaldað - allir lögfræðingar á fullu til að sanna mál sitt.

Demókratar töpuðu með skömm í síðustu forsetakosningum vegna þess þeir sættu sig ekki við ósigur - geta ekki viðurkennt að þeir séu ekki hinir útvöldu en 

"dramb er falli næst" - hroki bætir ekki úr skák og heiftin í "félagshyggjufólkinu" (góða fólkinu).

Trump verður sennilega forseti - megi honum vel farnast á nýja árinu.

Gaman yrði að vera í USA kosninganóttina og fagna með Donald Trump ef hann vinnur.smile


mbl.is Pútín hóf herferð til stuðnings Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÁSENDAVEÐRIÐ 1799.

Válynd veður eiga sér langa sögu hér á landi; útdráttur úr einu versta veðri er sögur greina frá:

"Fárviðri gekk yfir Suðvestanvert landið 9. janúar 1799 er talið vera eitt  hið allharðasta hér á landi sem sögur greina frá.

Mikið tjón varð austan frá Stokkseyri, á Suðurnesjum og allt vestur á Snæfellsnes, en hámarki náði þessi eyðingarmáttur við verslunar- og útróðrarstaðinn Básenda sem eyddist gersamlega.

Í þessu veðri lagðist af  kaupstaðurinn að Básendum á vestanverðu Miðnesi í Stafneslandi, nokkur veginn mitt á milli Sandgerðis og Hafna. Básendar voru gamalgróinn verslunarstaður.

Mikið útræði var á Básenda og kaupmenn sóttust eftir fiskinum sem fluttur var á markað á meginlandi Evrópu.

Verslunarmörk Básenda og og Keflavíkur voru lengst af óglögg, enda voru hafnirnar oft leigðar saman.

Á meðan þessar hafnir tilheyrðu hvor sínu kaupsvæði tókust Básendamenn-Keflavíkurkaupmenn lengi vel á um nokkra bæi í Útskálasókn, sem verslað höfðu sitt á hvað.

"Fylgdi því vedri regn mikit,þrumur og leiptranir",segir Jón Espólín. Fór veðrið saman við stærstan straum og olli tjóni á allri strandlengjunni frá Þjórsá og vestur á Breiðafjörð... Á Eyrarbakka braut sjórinn malarkambinn framan við kaupstaðinn.

"Eftir það átti sjórinn greiða leið yfir plássið og braut vörugeymsluhús og barst varningurinn langt upp á land. Þrjú kot tóku af með öllu og skemmdust,fjöldi skipa brotnaði og hestar sem gengið höfðu í fjörunni fórust í hópum.

"Fiskigarðar og túngarðar eyðilögðust víða á Suðurnesjum, tún spilltust og fjöldi báta eyðilagðist.

Kirkjan á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd skekktist af grunninum og brotnuðu níu bátar og eitt fjögra manna far, Kirkjan að Nesi við Seltjörn gekk af grunninum, 18 skip og róðrabátur brotnuðu.

Ef rétt er hefur sjávarstaða verið þrem metrum hærri en á venjulegu stórstraumsflóð.

Mestallur þaksteinn fauk af suður hluta  Dómkirkjunnar í Reykjavík og rúður úr gluggum.

Býlið Breið eyðilagðist, bjargaðist fólkið út um gat á þekjunni. Nokkra vikna gömul dóttir hjónanna lá í vöggu og var tekið það ráð að binda vögguna upp í sperru til varnar sjónum. Fjöldi skipa og báta eyðilagðist og í Borgarfjarðarsýslu sunnan Hvítár var talið 36 skip hefðu brotnað í veðrinu.

Mesta flóð sem jafnað var saman við þetta veður(Básendaveðrið) var hið svonefnda Háeyrarflóð í janúar 1653, en það mun hafa valdið langtum minna tjóni".

"20 mars 1999  Menningarblað/Lesbók 

"Verslunar- og útióðarstaðurinn Básendar eyddist í veðrinu 9.janúar,1799. Ennþá standa minjar um tóftir og hleðslur."


Aðventa - væntum komu frelsarans.

Pétur mikli Rússakeisari yfirgaf hásæti sitt og vann sem óbreyttur trésmiður, dvaldi þrjú ár með fátækum mönnuum; til að geta verið þjóð sinni betri leiðtogi.

Framtak Rússakeisara var vissulega göfugt en aðeins lítil eftirlíking af fórn Jesú Krists.

Kristur gekk meðal þjóðar sinnar sem þátttakandi í samfélaginu allt sitt líf-í sorg - í gleði. Þekkti einsemd og fátækt ; allt mannanna böl.

Var ofsóttur sakir skoðana sinna. Að lokum niðurlægður og deyddur á Krossi eins og tíðkaðist með sakamenn á þessum tíma.

Boðskapur Krists stendur engu að síður óhaggaður, þrátt fyrir allt er sigurinn hans; hann niðurlægði sig fyrir alla menn þeim til hjálpar með sigri sínum.

Aðventan er undanfari jólanna til að skilja boðskap Krists betur; geta tekið á móti honum í sjálfri jólahátíðinni.

Flestir keppastvið að hreingera heimili sín gefa börnum sínum, vinum og ættingjum eitthvað góðgæti.

Það er tjáning til að skapa hlýlega samveru um jólin;allt á að vera hreint og fágað þegar   Kristur kemur.

Með því að hjálpa naumstöddum, fátækum og einstæðingum  er að taka af öllu hjarta á móti Kristi með hreinum huga og feta fótspor hans; það er hinn innri  undirbúningur jólanna og skapar hina sönnu jólagleði.

_ Ekki má gleyma, að Kristur með sigri sínum hjálpaði öllum mönnum til að sigra hið góða - vera boðberar hans í lífi og starfi með kærleika sínum.


God is always with you Mister Trump.

iFyrir mér er Donald Trump og Boris Johnson um margt líkir ekki bara hárið heldur þeirra staða sem þjóðarleiðtogar báðir vinna þeir af einlægni fyrir þjóð sína.

Fyrir mér eru áðurnefndir leiðtogar mikilvægustu stjórnmálamennirnir komandi áratug — Trump ber aldurinn vel og ekki nærri því elsti stjórnmálamaðurinn sem ríkt hefur leiðtogi.ith


mbl.is Trump vill að fólk biðji fyrir sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólöglegur innflutningur, - ógn við besta heilbrigðisástand í heimi?-

Félög eggjabænda og kjúklingabænda, Reykjagarðar, Matfugl, eigenda- og ræktendafélag landnámahænsna og Bændasamtök Íslands hafa sent Matvælastofnun bréf þar sem áhyggjum er lýst vegna hættunnar af alvarlegum alifuglasjúkdómum berist til landsins.

Tilefnið er nýlegt mál í Þykkvabæ þegar upp komst um þegar ólöglegan innflutning á frjóeggjum, kalkúna og stuttu áður kom upp skæður veirusjúkdómur í kjúklingabúi sem rakinn er til smitefnis erlendis frá.

Er hvatt til þess að hart sé tekið á ólöglegum innflutningi. 

 (Fréttablaðið 18.des19)


Hross gengið úti frá ómunatíð

Hross hafa gengið úti síðan land byggðist.Þau voru 

flutningsæðin fyrir þjóðina fram á 20.öld; hrossin þurftu endurnýjun og höfðu best lífsskilyrði í Húnavatnssýslum og Skagafirði, voru flest þar á útgangi.

Veður eru válynd og stundum hart í haga en alltaf lífði stofnunin af harðindi og hagleysi fram á þennan dag.

Lög og reglugerðir eiga ekki að geta breytt framangreindum aðstæðum; hrossin eru best geymd í náttúrunni þrátt fyrir kuldakast sem koma óhjákvæmilega í harðbýlu landi.

Hins vegar er rafmagnsleysið alvarlegt mál við nútímaaðstæður með 100 – 200 kýr í fjósi.Oftrú á tæknina að ekkert geti  gerst er út í hött.

En nú  blasir  kaldur  raunveruleikann við og vonandi verður  hann tekinn til greina fljótt og vel.

 

 

 

  

 

 


mbl.is Tölur yfir dauð hross ekki hækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynslóðaskipti í stjórnmálum.

Allt bendir til að kynslóðaskipti séu afgerandi hjá Bretum. En er það ekki staðreyndin í Evrópu og hjá okkur á Íslandi?

Eldra fólkinu fjölgar, ungu kynslóðinni fækkar hlutfallslega meira. Ungt fólk menntar sig mikið án þess að eiga börn jafnvel nokkrar háskólagráður. Þá er t.d menntun lækna mjög löng.

Eldra fólkið hefur það betra en áður gerðist og lifir lengur. Reikna má með þessari þróun hvort sem okkur líkar betur eða verr.

Eftir því sem eldra fólkinu fjölgar hefur það afgerandi áhrif á stjórnmálin. Held að það sé ekki svo slæmt að öllu leyti þá jafnast hagsmunir milli kynslóða en eldri kynslóðin hefur átt í vök að verjast með lífskjör sín í langan tíma.

Þeir sem hafa barist fyrir okkur hér á landi eru  að mestu leyti velaunaðir eftirlaunaþegar sem ekki eiga  hagsmuna að gæta sjálfir?

Ef til vill jafnar þetta kynslóðabil sig eitthvað en eins og við vitum hefur verið flutt inn mikið af erlendu fólki til Evrópu (Tyrkir)til að vinna þau verk sem við viljum helst ekki gera sjálf.

En það fylgir böggull skammrifi ekki eru allir ánægðir með erlent fólk í sínu landi - og virðist vera orðið slæmt ástand í Svíþjóð.


mbl.is Áfram afgerandi kynslóðabil í breskum stjórnmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VILJI FÓLKSINS -GRÆNÁÆTLUN

Um alla Evrópu ÓSKA  bæði ungir sem aldnir eftir aðgerðum í loftslagsmálum. Þetta fólk er þegar  farið að breyta lífstíl sínum: þau hjóla t.d. og taka strætó, nota taubleyjur og svo framvegis.

Sum fyrirtæki hafna einnóta plasti og kynna Sjálfbærar lausnir inn markað. Í Reykjavík tekur unga fólkið vikulega þátt i mótmælum

"Föstudagar fyrir framtíðina".

Ríkisstjórn Íslands hefur sett fram metnaðarfulla aðgerðaáætlun í loftlagsmálum og ákveðið að taka sameiginlegu markmiði ESB um að uppfylla skuldbindingar Parísarsamkomulagsins.

Níu af hverjum tíu í loftslagsmálum vilja afgerandi aðgerðir í loftlagsmálum. Börnin okkar treysta á okkur.

Evrópubúar vilja að ESB þeirra bregðist við heima fyrir og sé leiðandi á alþjóðavísu.Þessa dagana safnast fulltrúar heimsins saman í Madrid fyrir loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna; til að ræða sameiginlegar aðgerðir til að bregðast við hlýnun jarðar

Hin evrópska Grænáætlun er svar Evrópu við ákalli fólksins. Hún er samin af Evrópu fyrir Evrópubúa, og er framlag Evrópu til betri heims.

Allir Evrópubúar geta tekið þátt í umbreytingunni....

(Fréttablaðið: Ursula von der Leyen. forseti framkvæmdarstjórar ESB)


MANNSHEILINN ER BESTA VERKJALYFIÐ

"Ástæða þess að sársauki eða verkur verður  svo óbærilegur sem oft er raunin, er sú  að tilfinningataugar líkamans virkja ekki aðeins grunnsársaukastöðvar heilans - þær sem greina staðsetninguna og sársaukastigið.

Heilaskannanir Tors Wager 2017 leiddu  ljós tvær viðbótarbrautir er virkjast í tengslum við hugarástandið og hafa afgerandi áhrif á upplifun sársaukans ásamt viðbrögðum okkar við honum.

Öfugt við grunnsársaukataugabrautina sem sýnir virkni í beinum tengslum við aukinn líkamlegan sársauka, eru hinar taugabrautirnar tvær ekki í beinu sambandi við taugar líkamans.

Önnur þessara taugabrauta magnar upp sársaukatilfinninguna án tillits til styrks þeirra boða sem um heilann berast frá skyntaugunum.

Með tilliti til þeirrar þekkingar sem þegar er fyrir hendi á þessum heilastöðvum álitur Wager að hlutverk þeirra sé að beina athyglinni að sársaukanum og sjá til þess við bregðumst við honum.

Hin taugabrautin dregur úr sársaukatilfinningunni og kenning Wagers er sú að það gerist með því að draga úr meðvitaðri umhugsun um sársaukann"....

(Lifandi vísindi nr. 11 2019)  Áfram góða Aðventu


Hamfaraveður í Silfrinu

Góðar umræður í Silfrinu í morgun um hamfaraveðrið. Öll viðleitni að finna syndahaf og kenna honum um allt sem aflaga fór datt niður dauð.

Samverkandi þættir spiluðu saman:Fjarskiptaleiðir,Rás1 datt út hér og þar, farsímakerfið, rafmagnslínur og tengiskápar fóru úr sambandi.Óveðrið snerti alla landsmenn meira og minna.

Verst fór Norðurland vestra út úr tjóni og Norðurland eystra og Austurlandi allt til Hornafjarðar.

Niðurstaða umræðunnar að engum einum er um að kenna en brýnt væri að samþætta vandamálinu.

Formanni Samfylkingar tókst ekki að gera málin pólitísk;

Sigurður Ingi sló á putta formanns Samfylkingarinnar, umræðan varð ekki pólísk sem betur fór.

 

 


Prestkosningar eru gott fyrirkomulag

Oft er sagt "maður kemur í manns stað"— ekki vil ég fara út þá sálma.

Prestkosning sóknarbarna munu skera úr um hver verður kosinn ekki er hægt að ráða niðurstöðunni – sama hvað jafnréttislög segjs – það eru leikmenn sem ráða svo kemur í ljós hvort maður kemur í manns stað – held það bara þau  eru öll Guðs þjónar.


mbl.is Níu sækja um prestsembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðventa lll-- Frelsarinn kemur

Aðventukerti III minnir fjárhirðana á Betlehemsvöllum er fyrstir fengu 

boðskapinn um fæðingu Frelsarans.

Afhentan hefur áhrif í lífi okkar. Við viljum hafa allt hreint í kringum okkur það er hinn ytri búningur Aðventunnar.

Hinn innri boðskapur er að Frelsarinn mun fæðast eins og spáð hafði verið.Hann færir mannkyni öllu boðskapinn um trú, von og kærleiks til allra innocent manna.

Hinn innri kærleikur leggur  okkur þær skyldur á herðar ; að öll skulum við boða kærleika Krists til allra manna, fyrir umhverfi okkar, náttúrunni, ber okkur að vernda í blíðu og striðu.

 Aðventu vinir mínir.


Er landsbyggðin "afdalabyggð" þegar hamfarir ganga yfir landið?

Hamfaraveður,slys og tjón á verðmætum hafa yfirgnæft allt samfélagið um allt landið, mismunandi mikið en snerti alla. Kaldur veikleikinn varð annar en haldið var.

Óveðrið vakti okkur landsbyggðafólk upp við vondan draum. Við bjuggu ekki við það öryggi þegar hættu bar að höndum eins og nauðsynlegt hefði verið..

Almannavarnir stóðu ekki undir því hlutverki er þeim var ætlað. RÚV féll út hér og þar,tjón vegna rafmagnsbilunar var ofviða þeim ríkisstofnunum sem um það sjá,farsímakerfið slitnaði, vegakerfið meira og minna í molum ; allt grunnkerfið stóðst ekki álagið í óveðrinu.

Kastljósið tók málið til meðferðar, fátt varð um svör en vandinn þó viðurkenndur og að gagngerðar breytingar væri þörf.

Það er mikill munur á Reykjavíkursvæðinu þar sem fjöldann býr og okkur úti á landsbyggðinni. Þar eru völdin sem ráða hvert fjármagnið fer og greinilega umtalsverður mismunur.

 Oftar en ekki tönglast talnasèrfræðingar og aðrir málsmetandi spekúlantar á, að við höfum fleiri þingmenn hlutfallslega en stóreykjavíkursvæðið.

Veruleikinn blasir við; erum afskipti úti á landsbyggðinni jafnvel eru almannavarnir í mikilli óreiðu  ef stærri samfarir yrðu; eldgos og jarðskjálftar?

 Ef við ætlum að lifa af erfiða tíma verðum við að vera ein þjóð í einu landi vonandi breytist það annars lifum við ekki af sem þjóð í harðbýlu landi.

Skammarlegt, forfeður okkar í gegnum aldirnar yfirstigu hamfarir,hungur, plágur í mönnum og skepnum og þraukuðu Þorrann og Góuna og  komust lífs. af.

 

 

 

 

 

 

.


"Æðsta ósk Sjálfstæðisflokksins að skaða RÚV"?

Stefán Ólafsson,prófessor HÍ notar yfirskrift yfir grein sína í DV: Æðsta ósk Sjálfstæðismanna að skaða RÚV".Eftirfarandi blogg er svar mitt við greininni:

RUV var hápunktur alls í afþreyingu þegar ég var barn allir elskaðu útvarpið mikið mál þegar batteríið kláraðist langt að fara í hleðslu en svo eignuðumst við annað batterí; enginn missti af neinu.

Nú er öldin önnur RUV er tröllvaxið fyrirtæki gnæfir yfir alla fjölmiðla í landinu. Útvarpið Rás 1 flytur sömu hundleiðinlegu þættina alla virka daga þrisvar eða fjórum sinnum á sólarhring .

Góðir partar á sunnudagsmorgnum og laugardagsmorgun- útvarpssaga er aldrei lesin nema til að ungir höfundar kynni sig sem er þörf á; en góð bókmenntaverk heyra sögunni til.

Kveikur er hlutdrægur fréttaþáttur. Nú tröllríður Samherjamálið samfélaginu - af hverju má ekki kanna loftslagskvóta braskið með hreint íslenskt loft hjá Landsvirkjun og Orkustofnun til erlendra fyrirtækja.

Þá er nauðsynlegt að kanna Krakkafréttir ; þær eru fluttar án þess að gæta hlutleysis ekki gott fyrir börn sem eru að þroskast. Þá eru fluttar daglega ísmeygilega fréttir af Donald Trump forseta USA; aldrei neitt jákvætt það er "sagt er" eða heyrst "hefur" stíll Gróu frá Leiti.("Efstaleiti")

Nauðsynlegt er að RUV dragi saman og skipuleggi sig upp á nýtt

Nær engir átt að RUV fái fleiri milljarða frá almenningi án aðhalds. Má segja að RUV standi óbeint í vegi fyrir framleiðslu íslensk efnis í máli og myndum vegna þess þeir hafa fjármagnið.

Skiptir miklu máli að ráða góðan útvarpsstjóra á borð við Þórarinn Eldjárn, rithöfund og lista mann sem er samgróinn íslenskri þjóð og menningu.

Út í hött að kenna Sjálfstæðisflokknum um hvernig komið er fyrir RUV er orðið ofurríkisvætt fyrirtæki lítur aðeins  eigin þóknanlegri ákvörðun;  vonandi leggur HÍ þeim gott til.

Rétt að taka fram að uppistaða efnis í sjónvarpinu eru gamlir margendurteknir sjónvarpsþættir; ekki fer fjármagnað til "spillis" hjá RUV ?

Núna þessa stundina er bókmennta þáttur stundum góður með pörtum en en fer að vanta endurnýjun - Gott að Kolbrún og Páll tækju sér "smápásu".

"Í Guðs friði" eins og fyrsti útvarpsstjórinn sagði alltaf eftir lok síns máls.

 

Lil

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband