FORSETAFRAMBOÐ "DOLLARASTRÍÐ"

Micghael Bloombeerg, fyrrverandi borgarstjóri New York-borgar og milljarðamæringur ætlar að bjóða sig fram til forseta USA og hyggst nota 31 milljón dollara í herferðina gegn Trump.

John Baden ætlar líka í framaboð; eitthvað hefur hann af dollurum í veskinu. Von er á skemmtilegri baráttu því ekki vantar Donald Trump, forseta dollarana.

Það er bara spurning hvað fjármagn vinnur "dollarastríðið" gott fyrir Trump að þeir fari báðir fram held bara að hann vinni.

Því fleiri sem bjóða sig fram til forseta því meiri líkur til að Donald Trump vinni "dollarastríðið".

Það verður skemmtileg að fylgjast með kosningasjónvarpinu þegar þar að kemur. Horfði síðast og skemmti mér vel, minnisstæðast er mér ræða Frú Clinton eftir að hún tapaði - hefði átt að sýna þá hlið meira í kosningabaráttunni.

Get ekki að því gert að ég held með Donald Trump, ekki má gleyma að hann rekur ættir sínar til Þýskalands og Írlands að mig minnir.


mbl.is Kaupir auglýsingar fyrir 31 milljón dollara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

íslenska vaðmálið til vegs og virðingar.

Gleðilegt að framleiða eigi úrval af jakkafötum á karla og að vinna í sameiginlegri línu í samvinnu við Iris Tweed,Skotland.

Tilhlökkun þegar fötin koma á markað verður vaflaust vel tekið af íslenskum karlmönnum.

Vonandi verður eitthvað hannað fyrir konur líka - ef til vill má nota gömul íslensk föt sem fyrir fyrirmyndir að einhverju leiti.

"Varðandi tweedið af forystu fénu þá er ekki reiknað með að fara í stærri flíkur - ætli "forystutweedið" íslenska færi ekki vel á okkur konum?

Þá er meiningin að klæða sófa með vaðmálinu í samvinnu við Epal - ekki að efa að það verður glæsilegt.

Svo er auðvitað sjálfsag; ef hægt er að lita sumt vaðmálið með íslenskum litum.

Skemmtilegt að herrafataverslun Kormáks & Skjaldar skuli gera hönnunina að glæsilegum fatnaði.Takk fyrir.

(Bændablaðið)

 


Bloggfærslur 25. nóvember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband