"ÞAÐ ER ALVEG SATT"

Umræða eins og ásakanir um kynferðislegt áreiti getur ekki verið byggð á sögusögnum. 

Að eyðileggja orðstír fólks með frásögnum manna í milli er alvarlegt mál.

Gott að rifja upp þessa sögu eftir  heimspekinginn og ritghöfundinn H.C. Andersen:  

 Merkishæna missti eina fjöður. Nágrannhæna hélt að hænan hefði gert það til að ganga í augun á hananum og lak sögunni í aðra hænu. Uglan taldi sig hafa heyrt hvað fram fór á milli hænanna og hvíslaði söguna að dúfunum er sögðu leðurblökunum. Sagan hélt áfram  þar til hún náði aftur í hænsnakofann.

Þá var fjöðrin orðin að fimm hænum, sem reittu af sér allt fiður til að ganga í augun á hananum.

 


Mjólkurframleisla í heiminum.

Stór hluti íbúa heimsins vinnur við mjólkurframleiðslu eða um einn milljarður hefur lífsviðurværi af mjólkurframleiðslu eða mjólkurvinnslu og sölu.Umræða um dýraafurðalaust fæði er frekur til umræðu hjá ríkara fólki en á heimsvísu er þessi umræða ekki hávær enn sem komið er.

Aukin áhersla á sjálfbæra mjólkur framleiðslu er samt veruleiki en flest stærri afurðafélaga í heiminum hafa markað skýra stefnu í átt að sjálfbærri mjólkurframleiðslu þ.e. framleiðslu sem hefur ekkert "fótspor"

Þrátt fyrir mörg fyrir sjáanleg vandamál er  ekki  til næg þekking á öllum hliðum framleiðslunnar að gera hana fótsporalausa með öllu  enda þarf slíkt ekki að ná  til framleiðslunnar á kúabúunum, flutningi á mjólk; allri vinnslu,pökkun kælingu og sölu.

Stóru fyrir tækin hafa ákveðið  þrátt fyrir vandamál að fara þessa  leið og varða þannig leiðina fyrir smærri fyrirtæki er ekki hafa burði til fjárfesta í þróun og rannsóknum til að draga úr "fótspori" framleiðslu sinnar sinnar.

Nú er spáð  af efnahags - og framfarastofnuninni(OECD) að  mjólkurframleiðalsa muni aukast næstu áratugi en heldur minna  eða um 1,7% og að árið  2028 verði mjólkurframleiðslan  komin  981 milljarða kg en í dag er ársframleiðslan 843 milljarða kg.

í Asíu og Afríku er mjög vaxandi framleiðsla  en langt  undir því sem við þekkjum í Evrópu.(Bændablaðið)

 


Bloggfærslur 7. nóvember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband