Kristján Möller "úlfur í sauðargæru"?

Kristján  Möller, þingmaður Samfylkingar talaði fullur vandlætingar á Bylgjunni í morgun um hvað kjör eldri borgara og öryrkja hækkuðu minna en hjá öllum öðrum í viðtali við fulltúra Framsóknar. Allt gleymt hvernig „vinstrivelferðarstjórnin“  lækkaði kjör umrædds fólks,  ekki nóg með það heldur rændi hún eignum eldri borgara  með auðlindaskatti . Sama stjórn ætlað einnig að láta þjóðina greiða Icesave-skuldina með vöxtum upp á 300 milljarða. Kristján nefndi ekki heldur að Samfylkingin sat í hrunstjórninni  þar sem hann sat sem ráðherra  og átti sinn þátt í efnahagshruninu. Að framansögðu dettur tæplega nokkrum manni í hug að trúa málflutningi Kristjáns eða flokki hans í velferðarmálum.

Hins vegar verða eldri borgarar að fá hækkanir á borð við aðra í samfélaginu – verður erfitt fyrir Bjarna  Benediktsson  að standa ekki við kosningaloforð um kjör eins og aðrir þjóðfélagsþegnar hafa fengið – eftir yfirlýsingar sínar fyrir kosningar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband