"ó borg mín borg - mín Höfuðborg"

Er á ferð í bænum (Kópavogi), bjó hér syðra í þrjátíu ár ­– að vissu leyti eins og að koma heim. Átti erindi niður á Klapparstíg en hef tímadunda fötlun – á erfitt um gang og  með merki fatlaðra á bílnum. Hvergi var laust almennt bílastæði og ekkert bílastæði fyrir fatlaða. Eftir langa leit gat ég lagt á bílastæði við  Hallgrímskirkju – eina bílastæðið fyrir fatlaða var við Landspítalann.

Hvað er borgarstjórn að hugsa hef heyrt því fleygt að 16 wc- klósett verði í 101 fyrir allar tegundir kynvera svo allir geti sinnt nauðþurftum sínum.

Hvenær kemur bílastæði fyrir fatlaða í 101, hundrað og einn?

Hver er þjónusta fyrir fatlaða í Höfuðborg allra landsmanna til að geta verslað í miðbænum?

 

https://www.youtube.com/watch?v=jyIG1dNe788


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband