Mjólkurframleisla í heiminum.

Stór hluti íbúa heimsins vinnur við mjólkurframleiðslu eða um einn milljarður hefur lífsviðurværi af mjólkurframleiðslu eða mjólkurvinnslu og sölu.Umræða um dýraafurðalaust fæði er frekur til umræðu hjá ríkara fólki en á heimsvísu er þessi umræða ekki hávær enn sem komið er.

Aukin áhersla á sjálfbæra mjólkur framleiðslu er samt veruleiki en flest stærri afurðafélaga í heiminum hafa markað skýra stefnu í átt að sjálfbærri mjólkurframleiðslu þ.e. framleiðslu sem hefur ekkert "fótspor"

Þrátt fyrir mörg fyrir sjáanleg vandamál er  ekki  til næg þekking á öllum hliðum framleiðslunnar að gera hana fótsporalausa með öllu  enda þarf slíkt ekki að ná  til framleiðslunnar á kúabúunum, flutningi á mjólk; allri vinnslu,pökkun kælingu og sölu.

Stóru fyrir tækin hafa ákveðið  þrátt fyrir vandamál að fara þessa  leið og varða þannig leiðina fyrir smærri fyrirtæki er ekki hafa burði til fjárfesta í þróun og rannsóknum til að draga úr "fótspori" framleiðslu sinnar sinnar.

Nú er spáð  af efnahags - og framfarastofnuninni(OECD) að  mjólkurframleiðalsa muni aukast næstu áratugi en heldur minna  eða um 1,7% og að árið  2028 verði mjólkurframleiðslan  komin  981 milljarða kg en í dag er ársframleiðslan 843 milljarða kg.

í Asíu og Afríku er mjög vaxandi framleiðsla  en langt  undir því sem við þekkjum í Evrópu.(Bændablaðið)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband