Ættjarðarsálmur

Gott að lesa ættjarðarsálm eftir sr.Mattías Jochumson trúarskáld sér til styrktar; þá hitnar um hjartarætur og  erfiðleikarnir verða léttvægir:

 

 

Krjúp lágt, þú litla þjóð, 

við lífsins náðarflóð.

Eilífum Guði alda

þú átt í dag að gjalda

allt lánsfé lífs þíns stunda

með leigum þúsund punda

 

Upp, upp, þú Íslands þjóð

með eldheitt hjartablóð,

Guðs sólu signd er foldin,

öll sekt í miskunn goldin:

Þú átt, þú átt að lifa

öll ár og tákn að skrifa.

 

Kom, Jesú Kristí trú,

kom, kom og í oss bú,

kom, sterki kærleiks kraftur,

þú kveikir dáið aftur.

Ein trú, eitt ljós, einn andi

í einu fósturlandi.

 

Mattías Jochumsson: nr.519.3.4.og 5.vers.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband