Draumurinn um fjármálabrask - aldrei aftur!

Ef vestræn ríki ætla að vera í forystu í varanlegum framförum þarf að verða sigæðisbylting þar sem ekki verður markmiðið að   arðræna heilu þjóðfélögin og láta almenningi eftir að borga brúsann; þá stefnir í sjálfseyðingu með efnahagslegu hruni; fjármálabrölt Baugsveldisins er skólabókardæmi um fjármálaveldi er eyðir langt umfram efni; og átti stóran þátt í efnahagshruninu hér á landi.

Ísland er örþjóð sem tekur stuttan tíma að gera að öreigum er getur endað  með inngöngu í ESB; þar sem auðlindir verða gjaldmiðillinn fyrir fámenna elítu hér á landi er mun ætla sér að lifa í vellystingum eftir "velheppnuð viðskipti".

Er það  framtíðin fyrir litla þjóð sem hefur alla möguleika á að lifa af sínu og verða áfram sjálfstæð menningarþjóð er mark er tekið á í alþjóðasamfélaginu.

Baráttan gegn ESB-framtíð er erfið þegar aðalblöð landsins Morgunblaðið og Fréttablaðið leiða umræðuna þar sem innganga í efnahagsbandalagið er framtíðarlandið.

Vonandi skipast kaupin á eyrinni á þann veg að Morgunblaði komist í hendur eigenda sem vilja lýðræðislega almenna umræðu um stórt hagsmunamál eins og innganga í ESB.


mbl.is Er draumurinn á enda?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband