Jafnaðarmenn - fórna fjöreggi þjóðarinnar fyrir ESB?

Lítt ígrunduð ályktun ungra manna  þar sem ekki er litið til heildahagsmuna þjóðarinnar er býr í landinu og  tilveru hennar er byggist á verðmætasköpun í landinu sjálfu; útflutningur og innflutningur séu í jafnvægi. Undirstaða þess er að ungt fólk geti sótt fram í krafti menntunar sinnar, er íslenskt samfélag hefur lagt grunninn fyrir; til að skapa verðmæti í eigin landi. Frumskilyrði  að svo megi verða eru  full yfirráð yfir fiskimiðunum  til að skapa útflutningstekjur; frumkvæði og nýsköpunarkraftur geti blómgast í samræmi við þá gjaldeyrissköpun.

Aðrar auðlindir eigum við að nýta með forystu íslenskra vísindamann í samráði við erlent fjármagn þar sem samningar miðast við þjóðarhagsmuni.

Stækkunarstjóri ESB Oli Rhen lýsti yfir í gær að '' Íslendingar væri velkomnir sem allra fyrst inn í ESB en yrðu að afsala sér yfirráðum yfir fiskimiðunum við landið''; sama  og að svipta þjóðina fjöreggi sínu um alla framtíð.FootinMouthSideways

 


mbl.is Skylt að sækja um ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband