Ríkisstjórn á brauðfótum

Vonandi eru þingmenn og ráðherrar búnir að jafna sig eftir skilaboðin frá forsetanum og standi saman um að kosning fari fram sem allra fyrst; engar ''maraþonumræður'' um setningu lagaramma um framkvæmdina.

Skipa þarf nýja nefnd til að ná samningum við Breta og Holllendinga, faglega ópólitíska nefnd, Svavar Gestsson og Indriði aðstoðarmaður fjármálaráðherra voru ótrúverðugir frá upphafi, pólitískir varðhundar ríkisstjórnarinnar er aldrei höfðu möguleika að hafa traust almennings í landinu; nefndin í heild pólitískt úr ranni  ríkisstjórnarinnar.

 

Nú stendur ríkisstjórnin á brauðfótum og getur sjálfri sér um kennt; sá veldur er á heldur.SidewaysHalo


mbl.is Ræða framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband