Gunnar Birgisson - er kjölfestan í Kópavogi

 

Undurrituð vonar að nýr meirihluti í Kópavogi beri gæfu til að stjórna bæjarmálum með festu og yfirsýn, eins manns meirihluti er ekki sterkt afl.  Gunnar Birgisson sem sjötti maður gæti orðið kjölfestan þegar miðla þarf málum á réttlátan hátt. Hann hefur mikla reynslu í málefnum bæjarins getur horft til allra átta til félagslegra þátta og framkvæmda, ratað hinn gullna meðalveg.

Það sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf að endurskoða fyrir næstu bæjarstjórnakosnindngar eru prófkjörskosningar; að stórir hagsmunahópar geti ekki ráðið hverjir skipa efstu/efsta sætin eins og átti sér stað síðast. Nóg var að skrá sig í  prófkjörskosningarnar á kosningadag. Krafan er að þeir kjósi í  í prófkjörinu er hafi verið flokksbundnir í eitt ár. 

Undirrituð telur að mikill lýðræðishalli hafi verið á umræddri kosningu, þeir er ekki kusu flokkinn í bæjarstjórnarkosningunum hafi ráðið för; ef rétt reynist veikir það meirihlutann enn frekar. 

Næstu prófkjörskosningar Sjálfstæðisflokksins verða að enduspegla vilja flokksmanna en ekki að utanflokkafólk ráði þar för til að koma ákveðnum manni að; er þjónar sérhagsmunum  einstakra íþróttfélaga eða annarra samtaka. FrownHalo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband