Tvinnbílar orka tvímælis?

Það sem gerir tvinnbíla  (rafmagns -og eldneytisbílar) áhugaverða er að með þeim er þróuð tækni í áttina að enn vistvænni bílum, svo sem tengiltvinnbílum eða vetnisbílum. Hafa verður í huga að enn er ekki til staðar tækniþekking til að framleiða vetni er á að koma í staðin fyrir eldsneyti á bíla ekki fyrr en hægt verður að nýta sólarorkuna í þá veru.Hingað til hefur reynst erfitt að framleiða rafhlöður sem eru allt í senn ódýrar, endingargóðar og nógu fyrirferðarlitlar og léttar til þess að hagkvæmt sé að nota þær til að knýja tvinnbíla.
Bandarískir  vísindamenn hafa  m.a. komist að  niðurstöðuu um, að bandarískur Jeep Wrangler með V8 vél, sé einn grænasti bíll sem til er. Þá þurfi Range Rove mun minni orku en tvinnbíll á borð við Toyota Prius.

 

 Útdráttur frá heimasíðu FÍB:   Wilfried Bockelmann þróunarstjóri Volkswagen segir  í viðtali við tímaritið Automotive Engineering International,  að tvinnbílar (bílar knúnir bæði bensín/dísilvél og rafmagnsmótor) séu blekking og væru ekki til nema vegna  heimskulegra laga um útblástur bíla í Kaliforníuríki.
„En við neyðumst víst til að vera með tvinnbíl til að geta yfirleitt selt bíla í Kaliforníu frá og með áramótunum 2008-2009,“ bætir hann við.
 

Bockelmann fjallar síðan um þá tvinnbíla sem nú eru í umferð og segir að í því samhengi að draga úr útblástursmengun séu þessir bílar tvinnbílar  þýðingarlausir við flestar aðstæður nema ef vera skyldi í Tokyo og París þar sem umferð er mjög þétt og hæg. Í þéttbýlustu borgum Bandaríkjanna séu þeir til nokkurs gagns, - í stórborgum semLos Angeles og Detroit. Þar aka menn að meðaltali 30-40 mínútur til vinnu, þar af  5 til 10 mínútna akstur í mjög þéttri umferð. Á þjóðveginum er brunahreyfillinn hins vegar nánast stöðugt í gangi, enda þarf stöðuga orku til að knýja bílinn áfram, yfirvinna loftmótstöðuna Kostir tvinnbílanna vega ekki upp galla þeirra segir Bockelmann, tvinnbílarnir eru þyngri og mun dýrari í framleiðslu.

Vilji menn í alvöru draga úr eldsneytisbruna bíla er betri kostur.að leggja áherslu á nýjustu dísilvélarnar TDI dísilvélar Volkswagen sem eru mun eyðslugrennri en samsvarandi bensínvélar og háþróaðar. En í mörgum ríkjum Bandaríkjanna, vegna mengunarlaga og regluverks í Kaliforníu og mörgum ríkjum Bandaríkjanna,  er ekki gert ráð fyrir diselbílum.

“ Það er óvenjulegt og raunar talsvert mikil frétt að jafn háttsettur maður í bílaiðnaðinum og Bockelmann gefi umhverfis- og mengunarlöggjöf Kaliforníu opinberlega þá einkunn að hún sé heimskuleg. Nútíma tvinn- eða tvenndartækni í bílum hefur vissulega kosti og ókosti eins og  tæknistjórinn bendir á. Kostirnir eru fyrst og fremst þeir að hemlunarorkan endurnýtist að stórum hluta sem straumur á rafgeyma bílanna. Í langkeyrslu fer hins vegar augljóslega minna fyrir þeim.kosti en í borgarumferð þar sem stöðugt er verið að taka af stað og hemla. Þegar bíllinn stöðvast eða rétt mjakast áfram í þéttri umferðinni er brunahreyfillinn minna í gangi – geymarnir og rafmótorinn sjá um að mjaka bílnum áfram sem er margföld á við hæga borgarumferð.” 

Greinilega skiptar skoðanir um hvaða bílar eru umhverfisvænir og fer ekki hjá því að hagsmunir bílaframleiðenda blandast þar með. En í nánustu framtíð er ekki von á þeirri lausn að hægt sé að framleiða vetni í stórum stíl fyrr en tekst að nýta sólarorkuna sem orkugjafa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband