Atvinnutækifæri í tæknilegri viðgerðarþjónustu?

Við eigum ungt fólk  vel að sér í tölvutækni en er ef til vill atvinnulaust. Gæti með lítilli fyrirhöfn og fjármagni sett upp viðgerðarþjónustur. Mikið álag er á viðgerðarþjónustu tölvufyrirtækja og tekur langan tíma auk þess er afar dýrt. Tölvur eru nauðsynlegur þáttur í samfélaginu bæði hjá eldri og yngri og erfitt að vera án þeirra langan tíma.

 Þá virðist vera mun meiri áhersla á sölumennsku á tölvum en viðgerðarþjónustu. Gæti breyst með meiri samkeppni. Vonandi les einhver atvinnulaus "tölvugúrú" bloggið mitt og setur upp tölvuþjónustu – og  jafnvel sjónvarpsviðgerðir einnig. Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband