4.10.2015 | 00:09
Bæn Gísla frá Uppsölum:
Gísli frá Uppsölum minnir um margt á meinlætamenn/einsetumenn fyrri tíma er drógu sig út úr samfélaginu; fjarri samtíma sínum lifði hann meinlætalífi í innilegri bæn til Guðs.
Bæn Gísla frá Uppsölum:
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni.
Láttu ætið ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
Eigið góðan sunnudag
3.10.2015 | 02:06
Ótrúverðug könnun - stærsta fall ríkisstjórnar -
Ótrúleg/ótrúverðug skoðanakönnun í þætti Gísla Marteins (RÚV) í gærkveldi, að Jóhanna Sigurðardóttir sé vinsælasti forsætisráðherrann af sex síðustu? Ríkisstjórn Jóhönnu kolféll eftir eindæma lélega stjórn efnahagsmála stærsta fall ríkisstjórnar frá upphafi.
Auk þess var Steingrímur J. Sigfússon "forsætisráðherrann" í orði og á borði; Jóhanna kom aðeins fram sem glanspía þegar við átti.
Skoðanakönnun ætti ávallt að sýna hvar í landinu fólkið er sem svarar - hvaða aldurshópur tekur þátt var hún aðeins framkvæmd á Reykjavíkursvæðinu eða jafnvel Reykjavík 101"?
Var ekki umræddur þáttur Gísla M. Baldurssonar - ísmeygileg tilraun til að reyna finna samhljóm/glansmynd hjá "vinstra liðinu"-?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.10.2015 kl. 08:07 | Slóð | Facebook
2.10.2015 | 10:24
Táningaldur -viðkvæmt þroskastigi.
Hvers vegna ögra unglingar með þessum hætti hverju eru þeir að mótmæla? Þeir eru að feta slóðina til fullorðinsára er brýst út sem ögrun við heimili, skóla og samfélag. Hegðun þeirra verður þvert á þau norm/fyrirmyndir er þau þekkja vel. Ómeðvitað/meðvitað eru þau að kalla eftir viðbrögðum sem eru eðlileg í glímunni á táningsaldrinum.
þá þarf nánasta umhverfi heimili og skóli að bregðast rétt við með skilningi; ræða við unglinginn á hans á erfiða og viðkvæma þroskaskeiði.
Fjölmiðlar eru tæplega vettvangur til blása út hegðun unglinga á viðkvæmu þroskastigi.
![]() |
Biðst afsökunar á athugasemdunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook
1.10.2015 | 05:22
Goðafoss - eldsvoði í óveðri
Undirritaðri er fersku minni ferð með Goðafossi í nóvember 2010 er skall á aftaka veður og stórsjór milli Íslands og Færeyja. Þá kom upp eldur í skipinu; tæplega spurt að leikslokum hefði ef skipið orðið vélarvana; rekið stjórnlaust fyrir veðri og vindi.
Hugrekki og áræði áhafnarinnar tókst vafalaust að forða stórslysi; þá skiptu sköpum rétt handtök. Áhöfnin var í mikilli hættu við slökkvistörfin vegna elds og óveðurs er brotsjór reið yfir skipið; litlu munaði að þrír færu útbyrðis, einn hékk aðeins á annarri hendi við borðstokkin.
Slys gera ekki boð á undan sér sífellt vofir hætta yfir sjófarendum vegna óveðra/ólags er engu eira. Með örari tækni og góðum búnaði skipa verður hættan ef til vill fjarlægari í undirmeðvitund þeirra er vinna á hafi úti; huga þarf vel að bjögunarbúnaði, æfingar séu reglulega um borð, allir viti hvernig bregðast á við fljótt og fumlaust.
Tæplega fá orð lýst þeirri lífsreynslu að verða sjónarvottur í umræddum aðstæðum.
![]() |
Slökkvistarf við mjög erfiðar aðstæður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook