26.9.2015 | 23:29
Stefán frá Hvítadal (1887 - 1933):
Skáld hafa ort kvæði Maríu Guðsmóður til dýrðar fram á okkar daga. Það sýnir að hún hefur enn ítök sem eiga sér óslitnar rætur frá upphafi kristni hér á landi.
Varst þú eitt með vorri þjóð,
virtir hennar minjasjóð,
heimtist öld af himni rjóð
hneig að brjósti þínu.
Sálir bundust sínu.
Heilaga móðir, heimt þú enn,
hlíf þú landi þínu.
Stefán frá Hvítadal.
Góðan sunnudag
26.9.2015 | 06:30
Lögleiðing samkvæmt kyni - æskileg?
Umræðan um skipun hæstaréttardómara ætti fremur að snúast um menntun viðkomandi annars vegar og reynslu í lögmannstörfum/stjórnsýslu hins vegar. Reynsla í störfum hlýtur að koma til álita í svo ábyrgðarmiklu starfi. Mætti vera skýrt í lögum að reynsla umsækjanda skuli ráða úrslitum um starfið, þegar viðkomandi aðilar hafa jafnmetna stöðu í menntun.
Umræðan snýst aðallega um hvort jafnréttislög séu brotin eða ekk að skipa jafnt konur sem karla; þá má halda fram að jafnréttislögin séu óframkvæmanleg um skipun í embætti.
Verður ef til vill að skipa konu óháð menntun og reynslu þá snýst málið um lögleiðingu samkvæmt kyni er það æskileg staða fyrir réttarkerfið?
![]() |
Horft til stjórnsýslustarfa Karls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook
26.9.2015 | 02:03
Boðar drauminn um frið til heimsbyggðarinnar.
Frans páfi gengur á Guðsvegum í Vesturheimi boðar kærleika Krists sem sterkasta aflið í vandamálum heimsbyggðarinnar - gegn stríði og hörmungum gegn menguðum heimi gegn fátækt og misrétti.
Táknræn stund var bæn hans við minnisvarðann um hryðjuverkaárásina á tvíburaturnana að viðstöddum fulltrúa fjölda trúarbragði.
Tilvitnun páfa í orð Martins Luther King segja allt er segja þarf: Ég á mér draum (Í have a dream), sem fórnaði lífi sínu í baráttu blökkumanna fyrir mannréttindum (í USA ) með kristin kærleika að vopni- afl sáttar- afl friðar afl réttlætis.
![]() |
Páfa fagnað eins og rokkstjörnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:05 | Slóð | Facebook