12.4.2010 | 15:37
"Allsber og utangátta"
Alsber og utangátta skipað af þáverandi utanríkisráðherra Ingibjörgu Sólrúnu, til fundar um "yfirvofandi krísu/fall Glitnisbanka" á fundinum: "síðan snýtir Össur sér og segir yfir fundarborðið að hann hafi bara akkúrat ekkert vit á bankamálumengin ákvörðun tekin í það skiptið.
Engin niðurstaða af fundinum. Er þessu frétt ekki dæmigerð um ráðleysið og vanmátt stjórnkerfis og stjórnmála/ráðherra að taka á ofurvofandi falli efnahagskerfisins; enn situr Össur í ráðherrastól "allsber og utangátta".
Stjórnkerfi og stjórnmálamenn brugðust hlutverki sínu; hvernig þeir taka á afleiðingum skýrslu rannsóknarnefndirnar; vinna úr henni til almennaheilla mun skipta sköpum um hvort þeir verði trausts verðir.
Ef ekki má búast við að upplausn og mótmæli í samfélaginu verði átakameiri en búsáhaldabyltingin í upphafi hrunsins.
Össur og aðrir ráðherrar er sátu við völd þegar hrunið varð og sitja nú; eiga að taka pokann sinn sem allra fyrst.
Allsber í búningsklefanum en sendur á fund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.4.2010 kl. 04:47 | Facebook