24.6.2010 | 12:12
Alþingi: - Músarholusjónarmið Ögmundar Jónassonar!
Ögmundur Jónasson lýsti í morgun fyrir Alþingi/þingheimi að hann/ríkisstarfsmenn eyddu einum vinnudegi í viku til greiðslu í lífeyrissjóð sinn; nefndi engu orði að greiðslur hans/ríkistarfsmanna eru verðtryggðar, ríkisstarfsmenn með belti og axlabönd, allt sitt á þurru; voru það ekki Vinstri grænir er tóku réttmætan skattafrádrátt af sjómönnum fjarri heimilum sínum, hlunnindi sem ríkisstarfsmenn gátu ekki þolað; en eru þó á háum dagpeningum og bílastyrkjum sjálfir á kostnað ríkisins.
Svo kemur Ögmundur Jónasson fram og talar um músarholusjónarmið sparifjáreignenda að þeir vilji vera fyrir ofan núllið í vaxtatekjum - heggur nærri sjálfum sér og flokki sínum?
Ögmundur Jónasson er farin að lifa sjálfan sig sem stjórnmálamaður, skaut sér undan merkjum sem ráðherra, blaðrar svo ábyrgðarlaust á þingi til að halda ímynduðu fylgi eða áliti meðal síns hagsmunahóps, ríkisstarfsmanna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:01 | Facebook