4.2.2011 | 01:19
Þjóðin - engin ríkisábyrgð vegna óreiðumanna!
Andstaðan er skiljanleg í ljósi aðstæðna, þjóðin felldi Icesave-samninginn síðast, málsókn á hendur útrásarvíkingum er settu efnahag þjóðarinnar í rúst gengur of hægt enginn verið sakfelldur, sífellt þrengir meira að öllum almenningi; líka þeim er hafa engin myntkörfulán; skattapólitíkin er kolröng má nefna bensínskattinn, umhverfisskattinn er vel mátti bíða. Kaup sífellt lækkað, skattfrádráttur ekki lækkaður; svo á þjóðin að greiða skuldir óreiðumanna er valdir voru að bankahruninu; þjóðin getur ekki tekið á sig ríkisábyrgð, víxil á barnabörn okkar/ komandi kynslóðir.
Þrengingar almennings eru nú mjög nálægt hættumörkum, hvers vegna ætti að auka áhættuna enn frekar með því að greiða Isesave-skuldina; sem er samkvæmt lögum ekki skylda okkar.
Afstaða þingflokksins óskiljanleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:02 | Facebook