20.2.2011 | 17:37
Húrra! húrra! húrra! húrra!, fyrir forsetanum
Stórtíðindi hafa gerst forsetinn hefur tekið forystu í vestrænum heimi að lýðræði skuli verða raunveruleiki framtíðarinnar; í stórum málum þar sem ætlunin er að setja skuldaklafa á almenning vegna skulda óreiðumanna í spilltu fjármálumhverfi.
Forsetinn sýndi mikið hugrekki hann stendur á sannfæringu sinni er hann rökstuddi mjög vel. Þjóðin hafnaði fyrri samningnum; þessi samningur er loðinn og enginn veit hver upphæð skuldarinnar verður.
Sátt verður meðal þjóðarinnar eftir að kosið hefur verið á hvorn veginn sem það fer.
Vonsvikinn og undrandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook