24.2.2011 | 20:53
Axarsköft verða stjórnlagaráð
Stjórnlagþingskosningarana voru tóm axarsköf, eitt leiddi af öðru, atkvæðin metin eftir óskiljanlegu reiknilíkani, kjörkassar óinnsiglaðir, misvægi atkvæða hróplegt rangæti, landsbyggðin gerð áhrifalaus, atkvæðaseðlar með rekjanlegum númerum, frambjóðendur of margir.
Stjórnlagaráð má telja marklítið vegna dóms Hæstaréttar; getur ekki orðið leiðandi afl í endurskoðun stjórnarskrárinnar. Best væri að tilnefndir yrðu valinkunnir menn að taka við uppkastinu frá ráðinu. Má nefna Sigurð Líndal, emeritus/prófessor í lögum, Eirík Tómasson, lagaprófessor, Pál Skúlason prófessor í heimspeki, Einar Sigurbjörnsson, guðfræðiprófessor, Salvöru Nordal, heimspeking, einn frá LÍÚ, einn frá bændasamtökunum, einn frá verkalýðshreyfingunni.
Ekki kosið til stjórnlagaþings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook