2.2.2012 | 07:20
Bensínverð langt yfir sársaukamörkum
Bensínverð er löngu yfir sársaukamörkum það ætti ráðherrann að vita engin lausn að stinga höfðinu í sandinn, hlægilegt af viðskiptaráðherra að fara að dæmi strútsins. Auðlindaskattur er óþarfur enda óskiljanlegt að leggja hann á þegar almenningur nær ekki endum saman. Þá þarf að skoða álagningu og rekstrarkostnað olíufyrirtækjanna, fækka bensínstöðvum, erlendis hjá milljónaþjóðum er ekki þvílíkur aragrúi að bensínstöðvum; þá er bensínverð grunsamlegar jafnt hjá öllum olífyrirtækjunum.
Tækifæri fyrir nýja fjármálaráðherrann að sýna hvað í honum/henni býr, leggjast ekki hundflatur fyrir fyrir Jóhönnu forsætisráðherra og reiknimeisturum hennar er setja inn "áætlaðar sjálfvirkar tölur" í hvert Exelskjalið eftir annað um hvað bensínið á að hækka.
Ekki er raunhæft að miða bensínverð við verð erlendis; kaupmáttur hér er mun lægri.
Komið að sársaukamörkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Facebook