9.2.2012 | 00:10
Vonandi fæðist meirihluti
Stjórnmálafræðingur frá Akureyri varpaði þeirri hugmynd fram í fjölmiðlum nýlega, að engar reglur væru til þegar stjórnarkreppa yrði í bæjarstjórnum. Ekki er boðlegt að stórt sveitarfélag eins og Kópavogur sé stjórnlaust svo lengi eins og raun ber vitni. Reglur þar um að skylda yrði að kjósa almennum kosningum ef meirihluti næst ekki innan hálfs mánaða eru nauðsynlegar.
Vonandi verða núverandi viðræður að starfhæfum meirihluta en þær eru það skársta í stöðunni. En samkvæmt núverandi lögum ekki leyfilegt kjósa; en þarfnast endurbóta sem fyrst.
Enn fundað í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:16 | Facebook