10.2.2012 | 15:37
Y- listi Kópavogs hefur samstarfið með óheilindum
Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrúi Y- lista Kópavogs hefur samstarfið á óheilindum í bæjarstjórn ; lýsti yfir í hádegisfréttum að hún hefði sett þau skilyrði að Gunnar Birgisson yrði ekki með forystuhlutverk í samstarfinu vegna ákæru í lífeyrissjóðsmálinu; hann fengi aðeins að hjálpa til í "skammakróknum". Þó mátti Ómar Stefánsson oddviti Framsókanar sitja í bæjrráði undir sömu ákæru.
Framkoma Rannveigar gagnvart Gunnari er óskiljanleg en hvers vegna? Ef til vill vegna þess að hann nýtur vinsælda íbúa Kópavogs fyrir farsælt starf í bænum. Hvers vegna Gunnar Birgisson gekk að slíkum afarkostum er erfitt að segja; ætla má að hann hafi viljað losa bæjarbúa við óþolandi stjórnkreppu og stjórnleysi fyrri meirihluta.
Þrátt fyrir allt hefur hann lykilstöðu um hverning til tekst; hefur áreiðanlega ekki sagt sitt síðasta orð.
Hvað ákæru í lífeyrissjóðsmálinu varðar björguðu ákærðu fjármunum lífeyrissjóðsins út úr bankakerfinu fyrir hrun með hagsmuni sjóðsfélaga og skattgreiðenda að leiðarljósi; spakmælið "nauðsyn l brýtur lög" á vel við framangreindar aðstæður; ef þau voru brotin?
Engin minnihlutastjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook