27.2.2012 | 13:47
Vinstri grænir svíkja stefnu sín - og þjóðina?
Undarleg "leiksviðsmynd", Ögmundur vil láta kjósa um ESB-aðild innan árs, Árni Þór Vinstri grænum geltir með Samfylkingunni og Össuri er kennir Vinstri grænum um hvað illa gangi að semja við ESB; enda Jón Bjarnason látinn hætta sem landbúnaðar- og sjávarútvegútvegsráðherra.
Hverju á að trúa, hverju á að treysta, hver er að svíkja hverja?
Ögmundur situr í ríkisstjórn sem ætlar að semja við ESB hvað sem það kostar; Össur og Jóhanna svokallaður forsætisráðherra vill meiri tíma til að geta keypt fylgi með "svokölluðum styrkjum"; en mætti kalla mútur.
Vinstri grænir þar með talinn Ögmundur hafa svikið eigin stefnu til að sitja í ríkisstjórn; svívirðileg afstaða er mun vonandi svipta þá fylgi og öllu trausti; eftir situr grasrótin með sárt ennið.
Hvers vegna ganga stjórnaliðar Vinstri grænna ekki í Samfylkinguna ásamt Ögmundi og Steingrími?
Ögmundur skorar á Össur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:55 | Facebook