8.3.2012 | 22:07
Vinstri "velferðarstjórnin" skaut sig í fótinn.
Jóhanna, forsætisráðherra og Steingrímur, ráðherra margra ráðuneyta skutu sig í fæturna, pólitíska plottið mun ekki ganga upp. Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra átti að taka alla sökina og Sjálfstæðisflokkurinn jafnframt að missa fylgi. Fólkið í landinu býr yfir ríkri réttlætiskennd, sér í gegnum moldviðrið; eftir sitja Samfylkingin og Vinstri grænir með skömmina.
Í upphafi skyldi endirinn skoða er gott og gilt spakmæli; sem Jóhanna og Steingrímur mundu ekki eftir.
Hefði átt að sýna réttarhöldin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.3.2012 kl. 11:44 | Facebook