13.3.2012 | 15:16
Siðlaus þingmaður!?
Hælbítar í minni sveit þóttu mikil óeign, gátu rifið skepnur illilega á hol en alltaf voru til menn sem þóttust þurfa slíka hunda; kemur Björn Valur í hug sem varðhundur Vinstri grænna? Langt undir pólitískum siðferðilegum mörkum að ákæra Geir H. Haarde einan en sleppa öðrum ráðherrum.
Núverandi forsætisráð herra, Jóhanna Sigurðardóttir hækkaði lánahlutfall íbúðarlánasjóðs á versta tíma í fyrri ríkisstjórn; tók forystu í óhóflegum útlánum til almennings þvert ofan beiðni norræna fjárfestingarbankans; einkabankarnir komu í kjölfarið og hækkuð lánahlutfall í 100%.
Jóhanna tók fullan þátt í siðspillingarbraskinu en þarf ekki að svara til saka, hvers vegna?
Geir H. Haarde átti að taka alla sökina; ráðherrar Samfylkingarinnar þurfa ekki að svara til saka vegna pólitískrar afstöðu meirihluta Alþingis; einn þeirra er núverandi forsætisráðherra eins og allir vita.
Ósmekklegasta ræðan á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook