27.11.2013 | 13:31
Hækkun lífeyrisaldurs - raunhæfur kostur
Hækkun lífeyrisaldurs er skásti kostur til að draga úr útgjöldum lífeyrissjóða gera lífeyristöku sveigjanlegri; með auknum lífaldri eru skuldbindingar lífeyrissjóða ekki nægilegar. Lækkun réttinda er ekki vænleg, skerðing lífbyrssjóða síðustu fimm árin hafa valdið of mikilli kjaraskerðingu. Eðlilegt er að nýtu reynslu og þekkingu lengur með sveigjalegum starfslokum.
Velferðarstjórnin sáluga ýtti framangreindum málum á undan sér gerði ekkert nema seilast beint í vasa eldri borgara með launalækkun og skattlagningu bæði á eignum og sparifé.
Ekki vænlegt að fara leið sósíaldemókrata í Svíþjóð er settu Svía á ríkisframlag sem fyrirfram ellilífeyrisþega eða "veika" með óheyrilegri skuldasöfnun.
Ekki verður hjá því komist að taka á málum lífeyrissjóða; vonandi með skynsamlegum hætti versti kosturinn er að lækka núverandi lífskjör meira en orðið er.
Hækka þarf lífeyrisaldur um 2-4 ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook