24.9.2015 | 20:50
Samkynhneigðir - vilja umbylta kristinni trú?
Oftar en ekki eru orðin mannsréttindabrot og mismunun ofnotuð til að réttlæta eigin yfirgang og hroka. Sammála vígslubiskupi hann segir að samviskufrelsið sé stjórnarskrárvarinn réttur og á meðal dýrmætustu mannréttinda.
Hvers vegna vilja samkynhneigðir endilega láta þann prest vígja sig sem af samvisku sinni og trúarlegum forsendum getur ekki hugsað sér verkið?
Af hverju ekki að leita til þess prests sem getur hugsað sér að framkvæma vígsluna? Mætti hafa þá venju að skrá þá presta á biskupsssofu er vígja samkynhneigða. Hver maður er sérstakur samkvæmt kristinni trú. Samkynhneigðir hafa engan rétt til að afnema boðskap Krists þeir hafa fengið almenn borgararéttindi og viðurkenningu á sérstöðu sinni mega búa saman og gifta sig; virðist ekki nægilegt heldur vilja þeir umbylta kristinni trú.
Prestar megi ekki mismuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook