8.10.2015 | 16:41
Áfengisfrumvarðið til umræðu á Alþingi
Áfengisfrumvarpið er til umræðu á Alþingi í dag má segja það málefnalega umræðu; greinilega er er málið þverpólitískt. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin telur óbreytt fyrirkomulag hér til fyrirmyndar öðrum þjóðum. Fjöldi samtaka og almennir borgarar hafa lýst andstöðu sinni við áfengisfrumvarpið: Landlæknir hefur lýst yfir andstöðu Hjúkrunarkvennafélagið, læknafélagið, kirkjan, SAMAN-hópurinn, Lýðheilsustöð, skólabörn, þingmenn í öllum flokkum, fræðslustjóri/skólamenn og yfirlæknir á Vogi.
Talið er að þrjátíu þúsund manns hér á landi eigi við áfengisvanda að stríða. Þá má reikna með að a.m.k um hundrað og fimmtíu þúsund manns, fjölskyldur þessa fólks er eiga í samfélagslegum erfiðleikum vegna áfengisneyslu vandamanna sinna; fyrir utan alvarleg umferðarslys og sjúkdóma er áfengi veldur.
Allar rannsóknir sýna að takmarkað aðgengi áfengis dregur úr áfengisnotkun.Tæplega lýðræðisleg lausn ef þingmenn ætla með þverpólitískri samstöðu að þröngva áfengi í matvöruverslanir í nafni frelsis þá gæti frelsið snúist í andhverfu sína ófrelsi.
Tilvalið mál að vísa til forsetans um þjóðaratkvæðgreiðslu- þjóðin fái að taka endanlega álkvörðun
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook