10.11.2015 | 18:15
"Global blue" náttúruvernd - fyrir Ísland?
Umræða um náttúruvernd hefur náð þokkalegri pólitískri sátt hér á landi svokallaðir vinstri flokkar geta ekki talið sig hafa einkarétt á henni enda verða þá engar framfarir. Björk Guðmundsdóttir, tónlistarkona gat sparað heimsfræga púðrið sitt til áhrifameiri umræðu á heimsmælikvarða; til þess hefur Björk alla burði með frægð sinni sem tónlistarmaður - en það ógnar ef til vill hennar eigin hagsmunum að hafa áhrif á svo risavaxna hagsmuni?
Ekki óþekkt að fólk hafi goldið fyrir þ.h. tilraunir með lífi sínu.
Vaxandi vatnsskortur á neysluvatni er ógnvekjandi og verðugt verkefni fyrir Björk Guðmundsdóttur,tónlistarkonu að hafa áhrif með frægð sinni; þar eiga í hlut stórþjóðir með risaframkvæmdir sem fáir gætu ímyndað sér. Má nefna vatnsflutninga frá Suður Kína til Norður-Kína, 1264 km leið, af því leiða risavaxin umhverfisáhrif og þarf að flytja 330þús manns til nýrra heimkynna auk ófyrirséðra umhverfisáhrifa í landbúnaði.
Vatnsyfirborð Aralvatns í Kasakstan fyrrum Sóvétríkja lækkaði um 10m. árin 1961-1985 vegna uppdælingar og áveitu á ræktarland. Fyrir 1960 var Aralalvatn 68.000 ferkm. en breyttist þá í fjögur stöðuvötn niður 17.16þús,ferkm., árið 1964. Árið 2007 var vatnið komið niður í 6.800 ferkm., um 10% af upphaflegri stærð. Hefur minnkað mikið síðan; uppþornaður vatnsbotninn er nefndu Aralkun- eyðamörkin.
Í Kaliforníu er umdeilt verkefni verið að reisa stærstu hreinsunarstöð á Vesturlöndum er felst í að breyta sjó í drykkjarvatn. ekki allir umhverfissinnar eru hrifnir, við hreinsunina fellur mikið salt og öðrum steinefnum er geta valdið ófyrirséðum skaða á lífríki og náttúru.
Að koma hingað, ráðast á eigið fósturland og nota til þess Iceland Airwaves tónlistarhátíðina var ekki skynsamleg náttúruvernd að reyna vekja athygli erlendra tónlistarmanna á að Ísland væri ábyrgðarlaust í raforkuframkvæmdum/náttúrvernd var vond landkynning, ekki bætti taglhnýtingur" Bjarkar, Andri Snær Magnason, rithöfundur og umhverfissinni þá kynningu.
(Upplýsingar teknar úr Bændablaðinu 5.nóv. 2015 bls. 20-21)
Kynnir loftslagsáætlun í þinginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Facebook