11.11.2015 | 10:31
RÚV OG 365 blási til söfnunar fyrir Samhjálp/Hlaðgerðarkot -
Samhjálp eru hjálparsamtök í okkar samfélagi sem vert er að hjálpa; yrði mikill missir fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur er eiga í vanda ef þau væru ekki til staðar. Samtökin hafa ekki fengið næga athygli fjölmiðla eins og önnur hjálpasamtök með opinberum stuðningi og söfnum í fjölmiðlum; kominn tími til að Samhjálp fái slíkan stuðning og blásið verði til sóknar með listamönnum til söfnunar þeim.
Undirrituð leggur til að safnað verði sérstaklega fyrir Samhjálp og útigangsfólk hjá RÚV og 365 sem allra fyrst; listamenn munu óefað leggja málefninu lið með glöðu geði.
Hlaðgerðarkot og Kaffistofan starfa á kristilegan og óleigingjarnan hátt af litlum efnum; samt sem áður tekist að hjálpa mörgum er hafa fengið bata og orðið nýtir borgarar í samfélaginu á nýjan leik.
Samhjálp leitar til landsmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:36 | Facebook