14.11.2015 | 15:19
Hryðjuverkin í París
Skelfileg hryðjuverk í París eru árás á siðmenningu okkar sagði Forseti Íslands þar mæltist honum vel. Frakkland hefur borið kyndil frelsis og breytt sögu Evrópu til frambúðar síðan almenningur réðist á Bastilluna alræmdu, 1789 - og lýðræðislegar umbætur urðu að veruleika í samfélaginu.
Kjörorð baráttu alþýðunnar: Frelsi, Jafnrétti og Bræðralag hafa óefað haft áhrif; og höfð til hliðsjónar í stjórnmálaskipun Evrópu fram á okkar daga.
Mikilvægt að minnast frönsku byltingarinnar eftir hryðjuverkin í gær ; vafalaust, þrátt fyrir allt, getum við öll verið þátttakendur áfram í frelsissigrinum er hófst í Frakklandi 14. Júlí 1789.
Breytum hryðjuverkum í sigur friðar og samheldni milli allra þjóða.
Gerið það, hjálpið mér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.11.2015 kl. 12:36 | Facebook