Sálmarnir 46 1Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð. 2Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. 3Því óttumst vér eigi þótt jörðin haggist og fjöllin steypist í djúp hafsins, 4þótt vötnin dynji og ólgi, þótt fjöllin riði af ofsa þeirra. (Sela) 5Elfur kvíslast og gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta. 6Guð býr í henni miðri, hún bifast ekki,A Guð hjálpar henni þegar birtir af degi....