31.7.2007 | 15:51
Vinstri grænir nöldurskjóður?
Blæs ekki byrlega fyrir Vinstri grænum með nöldri formanns um varnir Íslands um þessar mundir. Hefur ekkert skárra til að láta á sér bera eftir sárindin, að komast ekki í ríkisstjórn eftir umtalsverðan kosningasigur, sem er aumkunarverð staða fyrir flokkinn.
Vinstri grænir lofa ekki góðu í sterkri stjórnarandstöðu á komandi þingi fyrst og fremst vegna andstöðu sinnar við allt og alla. Geta varla talist trúverðugir stjórnarandræðingar vegna einstrengsstefnu sinnar í stjórnmálabaráttunni fyrir kosningar og ofsóknum á Framsókn sem skilaði þeim fylgi um stundarsakir en ekki þegar til lengri tíma er litið. Getur ekki endað með öðru en fylgishruni í framtíðinni.
Að mati undirritaðrar virðist Steingrímur J. útbrunninn í stjórnmálum og ætti að fá sér annað starf.Formaður VG óskar eftir fundi í utanríkismálanefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook