22.10.2008 | 15:15
Kosningar - ekki góður kostur!
Vart þarf að hugsa um kosningar næstu mánuði þegar eins alvarleg staða og nú í efnahagsmálum. Kosningar bæta ekki þann trúverðugleika er stjórnmálamenn hafa óhjákvæmilega misst. Pólitísk samstaða þarf að nást um brýnustu úrlausnir og ákvarðanir; þar sem stjórn og stjórnarandstaða þurfa að ná sátt um björgunaraðgerðir. Ef það reynist útilokað má mynda þjóðstjórn er væri betri kostur við okkar hörmulegu aðstæður.
Þá er kominn tími til að stjórnmálmenn axli ábyrgð og komi fyrir dóm kjósenda ef þeir skjóta sér undan ábyrgð nú.
Stjórnmálin biðu hnekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook