26.10.2008 | 14:24
Marklaus skoðanakönnun
Tæplega trúverðug skoðanakönnun þar sem miklar blikur eru á lofti á ákvarðanatöku í efnagasmálum er ekki er nærri lokið, þá greindi Rúv. frá því í morgun að 30% aðspurðra hefði ekki viljað svara. Vonandi heldur Geir Haarde áfram með úrlausnir ef Samfylkingin reynir þá leikfléttu í stöðunni að hverfa af vettvangi þá eru engan vegin öll sund lokuð.
Vinstri grænir halda vonandi ró sinni og taka þátt í stjórnarsamstarfi með Geir hafa lítið út úr samstarfi við Samfylkinguna eins og R-listinn í Reykjavík sýndi. Vinstri stjórn er versta stjórnarmynstur er hægt er að hugsa sér, yrði sundurlynd og valdalítil, enda ekki fyrir hendi í stöðunni ; ef ekki næst pólitísk samstaða er þjóðstjórn skásti kostur fyrst um sinn þangað til kosið yrði. Hver yrðu úrslitin þá getur engin skoðanakönnun sagt fyrir um.
Minnihluti styður stjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook