18.1.2009 | 15:52
Framsókn - næstbesti kosturinn?
Að mati undirritaðrar varð næstbesti kosturinn fyrir valinu Höskuldur hefði verð bestur haft mesta möguleika til að ná yfir bæði þéttbýli og dreifbýli; líklega orðið meiri áherslur á þjóðlegan félagshyggjuflokk þar af leiðandi minna um flokkadrætti. Hins vegar verður fróðlegt að sjá hvernig Sigmundi tekst upp hann er ágætisdrengur, líklegur til ná því að lesa stöðuna í flokknum, og taka ákvarðanir einnig út frá grasrótinni er hingað til hefur skipt litlu máli í Framsóknarflokknum.
Bestu hamingjuóskir til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Sigmundur kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:15 | Facebook