20.1.2009 | 13:02
"Ljósið í kreppunni"
Undur og stórmerki fjögurhundruð manns voru á góðri leið í fangelsi. Líklega góðar horfur á að fleiri bætist í hópinn eftir því sem skóinn kreppir meira að hjá almenningi. "Þó er ljós í kerppunni", líklega hægt að nýta tómu blokkirnar hér á höfuðborgarsvæðinu fyrir fangelsi og leysa vanda stóran hóps atvinnulausra með fangagæslu.
Má segja að ný atvinnusköpun sé í burðarliðnum auk þess þurfi ekki að byggja nýtt fangelsi nóg er af tómum skrifstofubyggingum og íbúðum. "Betri líf", hjá þeim skuldurunum er lenda í fangelsi og missa íbúðir sínar - ættu að geta tekið fjölskyldurnar inn til sín meðan kreppan stendur yfir.
"Þökk sé sýslumanninum á Selfossi að hafa stigið fyrsta mikilvæga skrefið".
Endurskoðar fjárnámsaðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:02 | Facebook