21.1.2009 | 23:03
Fundur hjá Samfylkingu - lýðskrum?
Njörður P. Njarðvík, prófessor lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að ríkjandi ástand í þjóðfélagi þar sem reiðin og óvissan er yfir og allt um kring, þá sé hætta á lýðskrumi þar þar sem tækifærissinnaðir stjórnmálamenn sjá sér leik á borði og reyna að ná fylgi.
Virðist vera að Ágúst Ólafur Ágústsson falli inn í lýðskrumið án þess að taka árbyrgð á núverandi stöðu; vill kosningar sem fyrst og kyndir með því undir æsing og stefnuleysi við framagreindar aðstæður, meðan formaðurinn er fjarverandi veik á sjúkrahúsi.
Undirrituð þekkir lítið til innan Samfylkingarinnar, en þótt Ágúst Ólafur reyna að afla sér álits í hita leiksins hjá reiðu fólki og sé varaformaður flokksins eru litlar líkur til hann verði framtíðarformaður. Þar verður Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaherra sennilega vænlegri kostur - þá mun Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi líklega vilja sjá þann "fallega dag", 'sem framtíðarformaður?
Eigum ekki að óttast þjóðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.1.2009 kl. 01:23 | Facebook