23.9.2009 | 11:45
Dvíð Oddsson, ritstjóri Mbl.
Hvers vegna eiga allir helstu fjölmiðlarnir að hafa þá ritstjórnastefnu, að innganga ESB sé eina rétta fyrir þjóðina; RUV virðist leynt og ljóst, Fréttablaðið og 365miðlar, dásama öll sæluríkið ESB , sjaldan eða aldrei eru ókostir rökræddir. Meira segja kom fram í fjölmiðlum virtur prófessor og taldi þurfa sérstök lög svo eigendur fjölmiðils geti ekki ráðið ritstjóra að eigin vild; er það tjáningarfrelsi að lög banni að ritstjóri hætti ef ágreiningur er um rekstur og ritstjórnarstsefnu?
Auk þess með efnahagsástand þjóðarinnar í huga er enginn betur fallin til að verða ritstjóri Morgunblaðsins en Davíð Oddsson. Hann mun setja málefnin fram á skeleggan og rökfastan hátt, hefur mikla yfirsýn á vettvangi þjóðlífsins, það verður málefnaleg og skemmtileg umræða; Davíð Oddsson í ritstjórnarstól Mbl sem allra fyrst.
Ritstjóramálum lokið á næstu dögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook