7.11.2009 | 01:47
Össur dragi sig í hlé sem fyrst
Hvers vegna ætti Ísland að ganga í ESB, allt eins víst að þjóðarframleiðsla ESBlanda dragist saman í nánustu framtíð þótt að með Lissabonsamkomulaginu ætli ESB að verða samkeppnishæfasta hagkerfi í heiminum árið 2012, til þess er atvinnuleysi er of mikið innan ESB, framleiðsla er einnig á brauðfótum, ríkið styrkir iðnað ótæpilega og heldur uppi háu gengi Evrunnar er getu ekki annað en endað með samdrætti og enn meira atvinnuleysi.
Innganga í ESB mun þegar til framtíðar er litið aðeins valda íslensku þjóðinni frelsisskerðingu og hefta viðskipti hennar við aðrar þjóðir.
Stærsta stefnumál Samfylkingar, er að koma íslandi inn í ESB og geta fengið sem mest af styrkjum þaðan; skammgóður vermir, er mun draga úr atvinnusköpun og framkvæmdavilja samfara auknu atvinnuleysi.
Ísland getur risið upp á eigin forsendum með dýrmætar auðlindir og vel menntað fólk, í viðskiptum við sem flestar þjóðir en ekki eingöngu ESB, en það verður raunin við aðild að ESB.
Össur Skarphéðinsson sat í ríkistjórn þegar bankahrunið varð ætti að draga sig hlé sem allra fyrst.
Icesave skemmir Evrópuumræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook