26.11.2009 | 00:41
Stendur forsetinn með Samfylkingu - eða þjóðinni?
Getur vont versnað, Isesavesamningurinn hefur þvælst nógu lengi fyrir Alþingi, stjórnmálamenn geta tæplega haft nokkurt traust lengur: eftir mikil umbrot í sumar sat stærsti flokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn hjá þegar málið fór í gegnum þingið.
Enn heldur þófið í þinginu áfram, verður Icesavesamningurinn marinn í gegn með naumum meirihluta; mun Sjálfsæðisflokkurinn sitja hjá?
Allt hefur brugðist, bankarnir í uppgjöri, heilindi þeirra á ystu mörkum, stjórnvöld sitja og láta skósveina sína reikna nýja og nýja skatta á þjóðina til að standa undir skuld er við eigum ekki að greiða.
Nú er ástæða til að setja forsetann upp við vegg og sjá hvort hann stendur með þjóðinni eða með pólitísku ráðabruggi Samfylkingarinnar/stjórnvalda í gruggugum samningum um Icesave -og ESB-samningum.
Forseti synji Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook