Enginn má undan líta

Sorglegt, einn geðþekkasti leiðtogi Sjálfstæðisflokksins telur sig knúinn  að stíga til hliðar vegna rannsóknar á peningamarkaðssjóðum þar sem hann var í stjórn. Enginn af forystuliði Sjálfstæðisflokksins má undan líta; nú hefur Illugi gefið tóninn ætlar að axla ábyrgð, síðar mun koma í ljós hvort hann er sekur eða saklaus.

Forysta Sjálfstæðisflokksins er tilneydd að horfast í augu við nýtt gildismat með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi; annað er ekki í boði eftir birtingu rannsóknarskýrslu Alþingis ef flokkurinn ætlar að vera áfram stærsti flokkur þjóðarinnar.


mbl.is Illugi fer í leyfi frá þingstörfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband