Tapsárar konur í framboði

Aðalefni Sunnudagsmorguns á RÚV – var álit Sunnu Valgerðardóttur og Heiðu Kristínar Helgadóttur um slakt gengi kvenna í prófkjöri Sjálfstæðismanna um helgina – héldu varla vatni fyrir vandlætingu hvorug óskaði Halldóri til hamingju með verðskuldaðan sigur.

Fylgdist vel með kosningabaráttunni enginn fjölmiðill var opanaður í margar vikur nema þar sem konur auglýstu framboð sitt – inn á   öllum  spjallrásum blöstu þær við sjónum almennings. Karlmennirnir auglýstu líka en ekki eins mikið, Halldór langminnst – auðvitað er gleðilegt ef konum gengur vel – en að verðleikum ekki bara af glans-auglýsingum um ágæti sitt.

 Minnir dálítið á framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta með  RÚV í forystu ásamt öðrum fjölmiðlum kepptust við að búa til „idealforseta“. Þóra sjálf fékk aldrei frið eða tækifæri til að sýna hvað í henni bjó; því fór sem fór með allri virðingu fyrir Þóru.

Meira segja formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna gat  ekki orða bundist – án frambærilegra raka ; formaðurinn hefði vel getað sýnt  þann drengsskap að óska Halldóri til hamingju með sigurinn.

 Enginn verður óbarinn biskup – það ættum við konur að hafa í huga –allra síst að kveina og kvarta yfir ósigri. Joyful


mbl.is Telur ólíklegt að listanum verði breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband