Geir stóð sig vel í viðtalinu við Ingubjörgu Sólrúnu á þriðjudagskvöldið.
Má segja að aldei þessu vant var Ingibjörg ekki eins hátt uppi og vanalega, hélt sig við málefnið og var ekki með dylgjur eins og hún er oft þekkt fyrir.
Skattleysismörkin eru ekki ein og sér lausn önnur hliði á málinu eru atvinnufyrirtækin sem verða að búa við hvetjandi umhverfi annars hverfa þau úr landi.
Lægstu launin þarf vissulega að bæta en ekki hefur nú náðst samstaða um aðgerðir.
Samfylgingin hefur ekki staðið sig betur þar en aðrir flokkar. Þó lét Steinunn Valdís borgarstjóri hækka lægstu launin en er nú ekkert hátt skrifuð hjá flokknum sínum fyrir það, rétt slefaðist inn í prófkjörinu.
Það er fjarri því að Geir hafi komið illa fram í víðtalinu. Hann kom fram af festu og kurteisi og er í alla staði stefnufastur og málefnalegur forsætisráðherra.
Sé ekki annan mann í brúnni í nánustu framtíð og mun það verða okkur til farsældar.
Eftir hvað reglum fer bloggritstjóri Mbl. þegar hann velur "valin blogg?"
Rétt áðan var valið blogg sem studdi að áfengisauglýsingar yrðu leyfðar.
Að leyfa áfengisaulýsingar er mál sem þarf að skoða í víðu samhengi og hvaða afleyðingar það hefði.
Auglýsingar í fjölmiðlum hafa óumdeilanlega skoðanamyndandi áhrif á alla, móta lífstíl og neyslu bæði unglinga og fullorðna.
Áfengi er skaðlegt heilsu manna og veldur dauðsföllum bæði í neyslu og bílslysum.
Einhliða auglýsingar áfengis eru varasamar og geta valdið meiri þjóðfélgaslegum skaða en nú er.
Ná slíkt frumvarð fram á alþingi er eðlilegt að leggja 10 til 20% skatt á áfengi til að standa undir auglýsingum til að upplýsa um hvað áfengi veldur t.d miklu böli í mörgum fjöskyldum svo eitthvað sé nefnt.
Af nógu er að taka hvað varðar rannsóknir á neyslu áfengis.
Undirrituð hefur alltaf fengið góðar móttökur hjá Mbl. með greinar um neyslu áfengis
Telur hún blaðið femst á blaðamarkaðnum hvað varðar birtingu gagnstæðra skoðana á ótal málum.
Það er nauðsynlegt hvað varðar bloggið að ekki sé óbeint tekið undir eina hlið málefnis t.d um leyfi á áfengisaulýsingum með því að velja "valið blogg" þar sem aðeins álit þeirra sem vilja áfengisauglýsinar kemur fram en horfa fram hjá gagnstæðum skoðunum.
13.12.2006 | 05:58
Ritvilla í blogginu
Ágætu bloggarar/lesendur.
Biðst velvirðingar vegna bloggsins þann 6.12. s.l. þar sem undirrituð skrifar um "stórnarandstöðuna" þar á að standa stjórnarliðana að sálfsögðu.
Undirrituð hefur ásett sér að skrifa bloggið af fingrum og birta það strax en þá er hætta á villum.
Vonandi skapar æfingin meistarann.
Annars hafði undirrituð gott af því að lesa eigið blogg aftur.
Komst þá að þeirri niðurstöðu með því að nota útiloknaraðferðina, að ekki muni undirrituð kjósa Samfylginguna í vor.
12.12.2006 | 23:49
"Með lögum skal land byggja, með ólögum eyða."
Nú fengum við jólakveðjuna frá markaðasöflum vínsins á stöð 2 í kvöld.
Það á sem sagt að leyfa auglýsingar á víni sagði Þórunn Guðmundsdóttir,lögfræðingur. "Það má ekki skerða frelsið," sagði hún.
Stundum er frelsið afstætt. Vínauglýsingar hafa birst í ýmsum myndum. Gott dæmi: t.d. hjá Jóa Fel. í annars ágætum matreiðsluþáttum hans, en gerir þáttinn siðlausann.
Í lok þáttanna kemur "helgasta" athöfnin í þættinum. Jói Fel. gefur sér langan tíma til að opna vínflöslu til að gæða vinum sínum með matnum.
Er það ekki einkamál hvort drukkið er vatn eða vín með matnum? "Lögleg" en siðlaus athöfn í sjónvarpi, í landi þar sem auglýsingar eru bannaðar. Skyldi Jói Fel. fá greitt fyrir ómakið???
Framangeind athöfn er gott dæmi um hvernig markaðsetning víns, lætur mjúklega en svífst einskis frekara en úlfurinn í Rauðhettu, sem át bæði ömmuna og Rauðhettu litlu. Er á góðri leið með að éta upp ungu kynslóðina og löngu búinn að éta upp mína kynslóð að mestu leyti upp til agna.
Almenningur vill vínauglýsingar," sagði þessi umræddi lögfræðingur. Hefur farið fram skoðanakönnun og hvers vegna almenningur vill vínauglýsingar?
"Með lögum skal land byggjam og með ólögum eyða," segir gott spakmæli.
Sú lögfræði sem vill afnema lög með þeim skýringum sem fram komu á stöð 2 í kvöld getur talist ólög. Hvað kemur næst, eitthvað sem hentar frjálsum markaðaöflum til að græða á peninga hvað sem það kostar?
Það er á engan hátt verjandi að auglýsa vín fekar en tóbak hvað sem þeir gera í útlöndum.
Sinn er siðurinn í hverju landi. Ferðamannaiðnaðurinn mun blómstra þótt vínið sé dýrt. Hingað kemur fólk til að njóta óspilltarar náttúru en ekki til að neyta víns.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.12.2006 kl. 18:31 | Slóð | Facebook
6.12.2006 | 16:57
Ingibjörg Sólrún "ofurölvi?"
"Framsókn undir pilsnermörkum," segir Ingibjörg Sólrún. Undirrituð þurfti orðabókina til að skilja pilsnermörkin. Ekki fannst orðið, en pilsner þýðir amkvæmt orðabók, drykkur líkur öli gerjaður við 5 til 12%C.
Samkvæmt framgreindum upplýsingum hefur framsókn 5 til 12% fylgi, eru þeir þá líklega nánast "timbraðir" og þurfa endurhæfingu.
Samfylgingin hefur ca. 30% fylgi og má segja að Ingibjög sé "ofurölvi" yfir þessu mikla fylgi og þurfi líka enduhæfingu.
Undirrituð dáðist mjög af Ingibjörgu á sínum tíma þegar hún náði meirihluta í Reykjavík. Svo veldur hver á heldur. Með glæsilegan feril að baki stökk hún frá borði úr borgarstjórnarstólnum. Fór í framborð þvert ofan í yfirlýsingar sínar með forsætisráðherrann í maganum.
Til að herða enn betur á framboði sín hélt hún sína frægu Borganesræðu. Að mínu mati með dylgjum um stjórnarandstöðuna frekar en málefnalega gagnrýni. Árangurinn varð líka eftir því. Sem betur fer virðist grasótin ekki alveg samþykk svona pólitík.
Núna kemur Keflavíkurræðan eins og þruma úr heiðskíru lofti. "Ofurölvi" af fylgi sínu hendir Ingibjörg hásetum sínum (þingmönnum) fyrir borð og telur þá ekki traustsins verða. Ekki fylgdi nein skýring eða skoðanakönnun þessari undarlegu fullyrðingu, að þingmenn hennar væri ekki traustsins verðir.
Svo boðar Ingibjörg Sólrún þjóðarsátt ein í brúnni. Erfitt hlýtur að verða að ná henni með háseta sem ekki er hægt að treysta.

6.11.2006 | 11:29
Hvar byrjar jafnaðarstefna Samfylgingarinnar?
Í síðustu borgarstjórnarkosningum í Reykjavík gekk þáverandi borgarstjóri Steinnunn Valdís fram fyrir skjöldu og hækkaði lægstu launin í borginni.
Það hefði verið rökrétt, að Steinunn Valdís hefði leitt borgarstjórnarlistann samkvæmt jafnaðarstefnunni.
Kjósendur listans (og forystan?) voru á öðru máli. Steinnunn Valdís lenti í 2. sæti , jafnaðarmannastefnan í borginni átti sem sagt ekki að byrja á lægsu laununum. Fyrst á að byggja tónlistarhúsið í Reykjavík.
Hvar skyldi jafnaðamannastefnan eiga að hefjast í komandi alþingiskosningum.
19.10.2006 | 11:26