Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

- BLÓÐGJAFIR SAMKYNHNEIGÐRA-

Enn þá einu sinni koma samkynhneigðir vælandi og vilja gefa blóð.Faglegir aðilar hér á landi hafa ekki vijað veita leyfið; nema e. t. v. ef samkynhneigður er vill gefa blóð hafi ekki haft samfarir við samkynhneigðan í fjóra mánuði áður en  blóð  er gefið; merkir væntanlega að sá sem blóðið gefur verði í einangrun umræddan tíma.

Ekki mega eldri borgarar gefa blóð – margir eldri borgarar eru hraustur og taka ekki lyf; ekki hefur heyrst kvörtun frá þeim.

Ekki virðist vera samstaða meðal fagaðila um að samkynhneigðir megi gefa blóð eða ekki;það liggur því ljóst fyrir að við sem ekki viljum umrædda blóðgjöf fáum að vera án hennar.

Hvers vegna geta samkynhneigðir ekki sætt sið við takmarkanir blóðgjafar rétt eins og eldri borgarar?

Virðist vera að samkynhneigðir sætti sig ekki við takmörkun umræddrar blóðgjafar, erfitt að skilja.

Verður ekki hver og einn að sætta sig við  sköpun sína og heilsufarslegar aðstæður;hafa ekki neinn rétt á sérmeðferð?

 

 

 

 

 


MAGNÚS ÓSKARSSON TILRAUNASTJÓRI OG YFIRKENNARI Á HVANNEYRI.

Magnús Óskarsson var jarðsettur frá Kópavogskirkju í dag hafði ekki tök á að vera viðstödd en hugur minn dvalið í minningunni um áratuga kynni á Hvanneyri.

Kynnin hófust er við hjón  leigðum saman íbúð með Magnúsi 1962, þá var hann kennari en maðurinn minn við nám í Framhaldsdeild fyrir búfræðikandídata.

Síðan tók við margra ára samstarf við Magnús,Jón sá um efnarannsóknarstöðina en ég fékk vinnu á sumrin við jarðræktarrannsóknir er Magnús sá um. Það voru svokallaðar Dreifðar tilraunir þar sem farið var víða um Mýra–og Borgarfjarðarsýslu og tekin hey-og jarðvegssýni af túnum hjá bændum, síðan þurrkaðar og  rannsakaðar á rannsóknarstofunni á Hvanneyri.

Nokkur sumur vann ég við að þurrka heysýnin undir leiðsögn Magnúsar. Hann var frábær húsbóndi og nákvæmar í leiðsögn.Öll blöðin um heysýnin voru síðan flokkuð og gengið skipulega frá þeim.

Eitt haustið kom Magnús að máli við mig,

sagði að vantaði í pappírana. Við fórum nákvæmlega yfir allt vinnuferlið en fundum ekkert óeðlilegt í framkvæmdinni.Svo leið veturinn og um vorið hringir Magnús í mig og biður mig að finna sig. Erindið var að segja mér að skjölin væru fundin og  ekki mín sök hvarf þeirra og bað hann mig innilega afsökunar en nemandi hafði þá tekið þau án vitundar Magnúsar."Þú starfar svo með okkur í sumar eins og verið hefur". Svona var Magnús gerður; mátti ekki vamm sitt vita í smáu sem stóru.

Oft fengum við hjónin að njóta góðrar tónlistar en hann átti mjög góð hljómflutningstæki er ekki var algengt í þá daga Þá var hann víðförull og sagði oft frá ferðum sínum;minnisstæð  er mér frásögn Magnúsar frá ferð til Ísrael þar sem hann kynnti sér samyrkjubú.

Magnús var mjög góður við Laufeyju dóttur okkar frá því hún var á öðru ári og vináttu þeirra hélst alla tíð og hittust þau eftir að Magnús flutti í Kópavog sem eldri borgari.

Við Magnús hittumst síðan vikulega hjá eldri borgara félaginu í Kópavogi og hlustuðum á upplestur Íslendingasagna.

Margs var að minnast frá Hvanneyri og rifjuðum við upp samveruna bæði í starfi og spaugileg atvik, Oft hló  Magnús sínum smitandi hlátri yfir skemmtilegum atvikum.

Magnús kom í Hvanneyri þegar miklar framfarir hófust í rannsóknum fyrir landbúnað, kennslu í bændaskólanum og framhaldsnám þar. Skipulagði hann starfið ásamt Guðmundi Jónssyni,kennurum og starfsmönnum; Magnús var lífið og sálin í öllum framförum Bændaskólans, helgaði vísindum og kennslu alla sína krafta og sá skólann komast á háskólastig.

Magnús sat um árabil í hreppsnefnd sveitarinnar; var ráðgefandi í málum samfélagsins.

Magnús var afar hógvær og lítillátur og hirti ekki um vegtyllur í starfi.

Vel færi á að einhver stofnun í Háskólanum á Hvanneyri bæri nafn hans; fyrr en síðar.

Blessuð sé minning Magnúsar Óskarsson.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Hættum barlómi um að lægstu launin séu OF HÁ!

Af hverju er lægst launaða fólkið alltaf látið sitja eftir? Af hverju getur hærra launað fólk ekki sætt sig við betri kjör handa lægstlaunuðum.Af hverju má ekki hækka lægstu launin áður en aðrir fá launahækkun? 

Hótað er gengislækkun ef lægstlaunaðir fá betri kjör.

Kominn tími til að hækka lágmark sem þarf fyrir brýnasta þörfum áður  en hinir hærra launuðu  fá launahækkun. Til þess eru næg efni.

HÆTTUM þessum barlóm að lægst launaða fólkið þurfi ekki betri kjör.

 

 

 

 


mbl.is Verra en lífskjarasamningurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru tengslin við Guð rofin?

 

Vegna greinar Viðars Guðjohnsen í Mbl 18.jan. s.l. er rétt að taka fram eftirfarandi:

Stjórnkerfi ríkis og kirkju var lengi vel eitt stjórnkerfi þar sem páfinn/biskupar höfðu völdin. Veraldlega kerfið tók yfir hægt og bítandi og urðu hörð átök eins og kirkjusagan greinir frá.

Hefur sú þróun verið nefnd "sekularisering" og loks varð  hið veraldlega ráðandi afl; kirkjan missti veraldlegu völdin.

"Mitt ríki er ekki af þessum heimi",sagði Jesús Kristur.Hans boðskapur var óháður veraldlegu valdi þar var hið trúarlegra samband Guðs og manns hið eiginlega vald.

Tengslin við Guð voru á engan hátt rofin heldur urðu hin  trúarlegum tengsl Guðs og manns skilgreind frá stjórnkerfinu.

En er deilt um hvort tengsl ríkis og kirkju skulu endanlega rofin en hér á landi  er þjóðkirkja,hvort kirkjan verði svo áfram verður tíminn að leiða í ljós;ef til vill er það framtíðin að svo verði?

Kirkjan í Frakklandi er óháð ríkisvaldi/stjórnkerfi og reynst farsælt.

Tengsl Guðs og manns eru alls ekki rofin heldur voru þau aðgreind frá veraldlegu valdi.

 

 

 

 

 

 


Vinstri grænir: " Pólitísk umhverfisvæn stefna"?!

Umhverfisvernd er góðra gjalda verð er í góðum farvegi, þó má alltaf bæta samráð þeirra er beinna hagsmuna eiga að gæta í samskiptum sínum við landið;bændur eru þar stór hagsmunahópur bæði hvað varðar nýtingu og  vernd.Bændum er vel ljósir hagsmunir þeirra sem er hæfilega nýting lands og skógrækt er þeir sinna mjög vel.

Er bröltið í umhverfisráðherra til að tryggja Vinstri grænum pólitísk völd "vafið í umhverfisvæna  umhyggju"?

Ekki fjarri lagi að hér sé málum blandað;vonandi fer fyrirhugað frumvarp ekki  óbreytt í gegnum þingið.

Þá fengju Vinstri grænir óbeint mikil völd á vegum  ríkisins.

 

 


mbl.is Í beinni: Fundur umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sofa landsbyggða þingmenn á verðinum fyrir umbjóðendur sína?!

Aftur fara Vestfirðingar illa úti náttúruhamförum en sem betur fer varð ekki manntjón.Flateyringar misstu lífæð sína,höfn og báta. Engin orð fá lýst svo alvarlegu tjóni.

Hamfaraveðrið 1995 er öllum minnistætt,þá misstu Vestfirðingar ástvini sína auk eignatjóns.

Minnisstætt er hamfaraveðrið 1995 í Bakkafirði ekki mannstætt veður og úrhellisrigning.Nýkomin var flotbryggja,í mikilli hættu og höfnin full af bátum.

Allir sem vettlingi gátu valdið  voru kallaðir út að  bjarga því sem bjargað varð.Bakkfirðingum tókst með samstilltu átaki að bjarga bryggju og bátum og unnu þar mikið afreksverk; er enginn heimamaður er þá var gleymir.

Enginn mannlegur máttur gat bjargað bryggju og bátum á Flateyri; vonandi berst þeim hjálp fljótt og vel svo lífið geti haldið áfram.

Komið hefur í ljós samkvæmt fréttum að framkvæmdir vegna snjóflóðavarna hefur ekki verið sinnt sem skyldi þó fjármagn hafi verið handbært.

Hafa landyggðaþingmenn sofið á verðinum að fylgja eftir lífshahagsmunum landsbyggðarinnar?

 

 


mbl.is Hefðu þurft að fara á fiskiskipum í brjáluðu veðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Völd forseta USA hafa alltaf verið farsæl þjóðum heims.

Að Demókratar skerði vald forsetans er borin von;Öldungadeildin mun aldrei samþykkja valdaskerðingu forsetans. Samkvæmt sögu Bandaríkjanna hafa mikil völd forsetans reynst farsæl.

Nefna má völd Róberts Kennedy í Kúbudeilunni;Rússar voru nánast komnir inn á lóðina við Hvíta Húsið þegar Kennedy, forseti stöðvaði her Rússa með ákvörðun sinni.

Þá má nefna Truman, forseta USA í II WAR;er tók þá örlagaríku ákvörðun að varpa kjarnorkusprengju á Japan. Hafa verður í huga að reynt var að semja um frið við Japan.

Truman stóð frammi fyrir styrjöld með innrás í Japan er hefði orðið þvílíkt blóðbað fleiri hundruð milljóna hermanna og borgara með tilheyrandi hörmungum,hungurs,sjúkdóma og allsleysi;

Japanar neituðu að gefast upp. Þá tók Truman forseti ákvörðun um að varpa kjarnorkusprengju á Hirosima með skelfilegum afleiðingum.Enn var reynt að semja frið að hálfu Bandamanna;Japanir neituðu sem fyrr að gefast upp.

Þá vörpuðu Bandaríkjamenn/Bandamenn annarri sprengju á Nakasaki með hörmulegum afleiðingum.

Þá tók Japanskeisari í taumana og samdi frið við vestrænir þjóðir er hefur haldist æ síðan.

Er ekki að réttlæta kjarnorkusprengjuna en Japanir neituðu að gefast upp.Auk þess hófu Japanir stríð við USA með því að sprengja flotastöð þeirra PEARL HARBO.

Japana dreymdi í margar aldir á ná heims yfirráðum samkvæmt sögunni og voru eins grimmir og nasista ef ekki grimmari; nefni aðeins Mansjúríu þar sem þeir rændu öllum góðmálmum og auðlindum; brytjuðu niður þjóðina ásamt fleiri þjóðum.

Kjarnorkusprengjan er mesta ógn við mannkynið og vonandi tekst þjóðum að halda frið en nú eru Iranir hættlegastir ef þeim tekst að koma sér upp kjarnorkusprengju.

Völd forseta USA eru mikilvæg og draga frekar en ekki úr hættunni á kjarnorkustríði.

 

 

 

 

 


mbl.is Vilja takmarka vald Trump til að hefja stríð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tala heilbrigðisstarfsmenn niður eigin starfsvettvang?

þessar pólitísku keilur Helgu Völu Helgadóttur eru vindhögg. Líklega er hún að hugsa um fylgi Samfylkingar sem er mikið meðal sumra heilbrigðisstétta.

Tvö mikilvæg þjóðmál eru oftar en ekki töluðu niður til að vekja athygli almennings. Heilbrigðiskerfið fyrir okkur almúganum, eftir starfsmönnum þess er "sökkvandi skipsflak"þar sem allt er á hverfandi hveli, sjúklingar í lífshættu; ekkert er hægt að gera vel.

Hitt mikilvæga málið sem talað niður er sjávarútvegurinn;  fjöregg þjóðarinnar — og einnig uppistaða  fjármagns til heilbrigðiskerfisins,umræða um það síðar....


mbl.is Segir Svandísi hóta starfsfólki Landspítalans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elísabet drottning heldur fast um stjórnartaumana.

Mikið gengur á hjá bresku konungsfjölskyldunni en Elísabet stendur fasta í fæturna og vill leyfa Harry og Megan að vera venjuleg vinnandi fjölskylda og er það vel,

Vona að Charles og Camilla verði konungshjón með tíð og tíma.þau eiga það skilið eftir öll svikin að mega ekki verða hjón.

Harry og Megan fá að verða venjulegt fólk en samt má vona að við fáum að sjá myndir af þeim annað slagið.


mbl.is Meghan viðurkennir að sér hafi liðið illa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÆSTI ÚTVARPSSTJÓRI

Athyglisvert að lesa staksteina Mbl. í dag þar hafa tveir útvarpsmenn misnotað hlutleysi RUV á vítaverðan hátt.

Fréttamennirnir eru: Helgi Seljan og Eiríkur Guðmundsson.

Verð að greina frá draum er mig dreymdi fyrir nokkrum dögum::

Mér fannst heyrast hróp langt í burtu og gekk á hljóðið það var hrópað:

"Illhugi Gunnarsson fyrrv.menntamálaráðherra verður útvarpsstjóri!"

Hann var einu sinni  Allaballi síðan Sjálfstæðismaður góð blanda.😃

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband